Vara við stormi um landið norðvestanvert Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2017 10:32 Vindur verður yfirleitt hvass af suðri í dag um allt land, þar sem hlýskil hreyfast norður fyrir landið. Nullschool
Veðurstofa Íslands varar við stormi á norðvestanverðu landinu og miðhálendinu í dag. Vindur verður yfirleitt hvass af suðri í dag um allt land, þar sem hlýskil hreyfast norður fyrir landið. Sums staðar mun hiti mælast í tveggja stafa tölum. Víða um land mun rigna í dag. Í kvöld mjakast þó kuldaskil austur fyrir landið og mun kólna ört í kjölfarið. Úrkoma verður éljakennd en létta mun til smám saman fyrir austan. Þá er von á verulegum hitasveiflum í næstu viku. „Á morgun blæs hvöss suðvestanátt með éljum hér og þar, en bjartviðri eystra og hiti verður ekki fjarri frostmarki. Í vikunni koma síðan lægðirnar hver af annarri með hvössum og úrkomusömum vindum og verulegum hitasveiflum,“ segir á vef Veðurstofunnar.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestan strekkingur og él, en lægir talsvert um hádegi. Gengur í hvassa sunnanátt með slyddu eða rigningu um kvöldið og hlýnar, en stíf norðaustanátt og snjókoma norðan- og vestanlands og áfram vægt frost þar. Á miðvikudag: Snýst í minnkandi suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri. Á fimmtudag: Suðaustlæg átt og dálítil snjókoma eða slydda sunnan til og hlýnar í veðri, en þurrt að mestu og talsvert frost fyrir norðan. Á föstudag og laugardag: Líkur á suðlægum áttum með skúrum eða éljum. Hiti um og yfir frostmarki.
Veður Mest lesið Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Erlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Fleiri fréttir Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Sjá meira