Handbolti

Birna Berg óstöðvandi í sigri Glassverket

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birna Berg skoraði níu mörk.
Birna Berg skoraði níu mörk. vísir/getty
Birna Berg Haraldsdóttir var heldur betur í stuði þegar Glassverket tók Storhamar í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Birna Berg skoraði níu mörk í 33-32 sigri Glassverket. Birna Berg var markahæst í liði Glassverket og næstmarkahæst á vellinum.

Birna Berg og stöllur hennar voru átta mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn, 19-11, en tóku fótinn af bensíngjöfinni í þeim seinni. Forystan var þó nógu mikil og Storhamar fór ekki að þjarma að Glassverket fyrr en á lokamínútum.

Glassverket er í 2. sæti deildarinnar með 19 stig, fimm stigum á eftir toppliði Larvik sem hefur unnið alla 12 leiki sína í vetur.

Samherji Birnu Berg í íslenska landsliðinu, Rut Jónsdóttir, skoraði þrjú mörk þegar Midtjylland vann eins marks sigur á Viborg, 25-26, í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Midtjylland er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×