Áfyllingin kom ekki í veg fyrir bætur Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. febrúar 2017 17:31 Konan ók Gullinbrú í norðurátt en beygði inn á Fjallkonuveg til að ná í bensín. Svo var planið að aka aftur norður Gullinbrú en hún lenti í árekstri á bensínstöðinni. Vísir/Loftmyndir.
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að greiða skuli greiða heilbrigðisstarfsmanni á Landspítalanum tæplega 3,6 milljónir króna í bætur vegna miska og örorku sem konan varð fyrir á leið sinni heim úr vinnu í október 2012.Deilt var um hvort hún gefði verið á „eðlilegri leið“ milli vinnustaðar og heimilis þegar slysið varð en konan kom við á bensínstöð Olís við Fjallkonuveg á leið sinni heim á leið. Ætlaði hún að taka bensín en hún sagðist hafa verið að verða bensínlaus. Þar bakkaði hins vegar ökumaður bifreið á hana og var áreksturinn nokkuð harður með þeim afleiðingum að konan hlaut 18 prósent varanlegan miska og 15 prósent varanlega örorku. Lögmaður ríkisins vildi meina að með því að stoppa og taka bensín hefði hún verið að sinna einkaerindum og ekki lengur hægt að fallast á að hún væri á beinni leið frá vinnu og heim til sín. Hæstiréttur, líkt og héraðsdómur, komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það hafi verið „nauðsynlegur og eðlilegur þáttur í akstri bifreiðarinnar frá vinnustað að heimili stefndu að kaupa eldsneyti á bifreiðina“ þar sem bifreið hennar hafi verið eldsneytislítil. Var því fallist á að ríkið þyrfti að greiða konunni 3,6 milljónir króna í bætur auk þess sem að ríkið þarf að greiða konunni 600 þúsund krónur í málskostnað.Sjá má dóm Hæstaréttar hér.
Tengdar fréttir Ríkisstarfsmaður fær bætur þrátt fyrir að hafa tekið bensín Deilt var um slysatryggingu konunnar vegna þess að hún tók bensín á leið heim úr vinnunni. 25. febrúar 2016 12:45 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira
Ríkisstarfsmaður fær bætur þrátt fyrir að hafa tekið bensín Deilt var um slysatryggingu konunnar vegna þess að hún tók bensín á leið heim úr vinnunni. 25. febrúar 2016 12:45