Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. október 2026 08:24 Selenskí Úkraínuforseti er að vonum ekki ánægður með samkomulagið. Getty Volódímír Selenskí Úkraínuforseti gagnrýnir harðlega samkomulag Donalds Trump Bandaríkjaforseta um kaup á rússneskri díselolíu. Hann segir samninginn gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði.
Trump tilkynnti um samkomulagið á samfélagsmiðli sínum Truth Social í gær. Þar sagði hann Pútín hafa samþykkt að setja þegar í stað þrjú hundruð þúsund tonn af díselolíu á bandarískan markað og heimsmarkað. Hálf milljón tonna til viðbótar kæmi í nóvember og önnur milljón þar á eftir. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins hefur bandaríska fjármálaráðuneytið gefið út tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum sem heimilar viðskiptin til 7. apríl. Aðrar þvinganir, meðal annars frysting rússneskra eigna í bandarískum bönkum, haldast í gildi. Selenskí segir samkomulagið jafngilda „fjárfestingu í stríði sem verður að binda enda á, ekki framlengja“. Rússar muni gjalda fyrir olíuviðskiptin með „frekari ógnarverkum“. „Við treystum á sanngjarnan stuðning Bandaríkjanna við varnir okkar fyrir lífi fólks í Úkraínu — og að Bandaríkin tali af samsvarandi festu við Rússland. Af festu, ekki veikleika,“ skrifaði forsetinn á samfélagsmiðla. Óvíst hvort Rússar geti staðið við afhendinguna Trump sagði að þrjár milljónir tonna til viðbótar gætu borist innan skamms. Það ylti þó á ástandi rússneskra olíuhreinsistöðva, sem Úkraínumenn hafa ítrekað ráðist á. Pútín staðfesti síðar að hann hefði rætt stöðu orkumála í heiminum við Trump á föstudag. Rússar væru reiðubúnir að selja olíu og olíuafurðir til Bandaríkjanna og á heimsmarkað. Hann nefndi engar tölur um fyrirhugaða afhendingu. Sérfræðingar sem breska ríkisútvarpið ræddi við draga bæði í efa að Rússar geti afhent þetta magn og að viðskiptin muni lækka eldsneytisverð að ráði. Tim Armitage, fjárfestingarsérfræðingur hjá Quilter Cheviot, segir fyrstu afhendinguna samsvara um 2,25 milljónum tunna. Dagleg díselolíunotkun Bandaríkjamanna nemi hins vegar um 3,8 milljónum tunna. Magnið muni því ekki hafa veruleg áhrif á verðið á dælunni. Eldsneytisverð þrengir að Trump Rússar hafa þó sjálfir glímt við eldsneytisskort í kjölfar árása Úkraínumanna á olíuhreinsistöðvar. Alþjóðaorkumálastofnunin áætlar að dísilolíuframleiðsla landsins hafi dregist saman um tæp þrjátíu prósent. Trump hefur lýst óánægju með árásirnar og kennt þeim um hækkandi eldsneytisverð. Selenskí varði þær á föstudag og sagði þær svar við áralöngum árásum Rússa á orkumannvirki Úkraínu. „Úkraína mun ekki kveikja í rússneskum olíuhreinsistöðvum ef Rússland hættir að eyðileggja orkumannvirki okkar.“
Bandaríkin Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira