Setja upp sjálfvirk landamærahlið á Keflavíkurflugvelli Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. mars 2017 10:07 Keflavíkurflugvöllur. Vísir/Vilhelm
Isavia mun setja upp tólf sjálfvirk landamærahlið á Keflavíkurflugvelli í sumar. Samningur um uppsetningu hliðanna var undirritaður í morgun. Í tilkynningu frá Isavia segir að gert sé ráð fyrir að hliðin muni hraða afgreiðslu í landamæraeftirliti og auka þægindi farþega. Þar segir einnig að slík hlið séu orðin orðin algeng sjón á flugvöllum í Evrópu.Jón Pétur Jónsson yfirmaður löggæslu á Keflavíkurflugvelli, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Guðmundur Karl Gautason stjórnandi aðgerðagreiningar hjá Isavia, Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Suðurnesjum, Christian Rutigliano yfirmaður sölu hjá secunet og Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar.VísirFyrirtækið secunet sér um uppsetningu hliðanna en landamærahlið frá fyrirtækinu eru meðal annars notuð á stærstu flugvöllum í Þýskalandi, auk flugvallarins í Prag í Tékklandi. Hliðin virka þannig að þau lesa upplýsingar í vegabréfi farþega auk þess að bera myndina í vegabréfinu við mynd sem hliðið tekur af farþeganum á flugvellinum. Landamæraeftirlitið fylgist með notkun og taka lögreglan og landamæraverðir við ef hliðin telja að skoða þurfi ákveðið vegabréf betur. Samningurinn er gerður að undangengnu útboði og í samstarfi við ríkislögreglustjóra og lögreglustjórann á Suðurnesjum, en landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli er framkvæmt af lögreglunni.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira