Jeppi brann til kaldra kola við Gígjökul Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. mars 2017 11:24 Bíllinn er gjörónýtur eftir brunann. mynd/Anton Kári Halldórsson
Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning klukkan 15:13 í gær um bíl sem var að brenna á Þórsmerkurvegi við Gígjökul. Bíllinn brann til kaldra kola en hann var í eigu ferðaþjónustufyrirtækisins Boreal – Super Jeep Excursions. Engir farþegar voru um borð í bílnum en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni ók íslenskur leiðsögumaður honum inn á svæðið þar sem hann var með fjóra unga Þjóðverja í fjallaferð. Leiðsögumaðurinn og ferðamennirnir voru í námunda við bílinn þegar eldurinn kom upp og náði leiðsögumaðurinn með snarræði að bjarga eigum ferðamannanna úr bílnum, þar með talið vegabréfum þeirra. Ekki er vitað um eldsupptök en jeppinn er gjörónýtur og var fjarlægður af vettvangi í gær þegar slökkvilið sem kom á staðinn hafði slökkt eldinn. Ökuleiðsögumaðurinn og ferðamennirnir voru aðstoðaðir til byggða af björgunarliði og var síðan bíll frá fyrirtækinu sendur eftir þeim. Ingi Þorbjörnsson, eigandi Boreal – Super Jeep Excursions, segist ekki telja að bruni bílsins sé mikið tjón fyrir fyrirtækið þar sem það sé að öllum líkindum tryggt fyrir atvikum af þessu tagi. Fyrir mestu sé að enginn hafi verið í hættu eða slasast í brunanum.
Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Sjá meira