Trump kennir Demókrötum um og segir að Obamacare muni "springa“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. mars 2017 21:54 Donald Trump. Vísir/AFP
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna segir að andstaða Demókrata við heilbrigðisfrumvarp Repúblikana hafi orðið til þess að hætt var við að kjósa um frumvarpið á bandaríkjaþingi í kvöld. Trump ræddi við fjölmiðla frá skrifstofu hans í Hvíta húsinu eftir að ljóst var að frumvarpið myndi ekki fá nægan stuðning á þingi. Var því ákveðið að draga það til baka og því ljóst að Obamacare, núverandi heilbrigðisslöggjöf í Bandaríkjunum sem Trump lagði mikla áherslu á að fella úr gildi mun áfram gilda í Bandaríkjunum. Í máli Trump við fjölmiðla kom þó fram að hann hefði ekki mikla trú á að Obamacare myndi lifa mikið lengur. Gerist það vill hann fá Demókrata að borðinu til þess að semja um nýtt heilbrigðisfrumvarp. „Það sem væri mjög gott, miðað við engan stuðning frá Demókrötum, væri ef þeir myndu koma til móts við okkur og semja um alvöru heilbrigðisfrumvarp. Ég væri mjög opinn fyrir því,“ sagði Trump. Sagði hann að Obamacare væri við það að „springa“ og mögulega væri best að leyfa því að falla saman af sjálfu sér áður en haldið væri af stað til að semja nýja heilbrigðislöggjöf. Mikill ágreiningur er meðal Repúblikana á þingi um það hvers konar löggjöf eigi að taka við af Obamacare-lögunum svonefndu en eitt helsta kosningamál Trumps var að gera Obamacare-lögin að engu. Ljóst þykir að það að ekki hafi tekist að koma Trumpcare, eins og þetta heilbrigðisfrumvarp hefur verið nefnt, í gegnum þingið þykir mikið áfall fyrir Trump. Lagði hann áherslu á að næst myndi hann leggja áherslu á endurbætur á skattamálum og því ljóst að Repúblikanar munu ekki snerta á nýju heilbrigðisfrumvarpi á næstunni.
Tengdar fréttir Áfall fyrir Trump: Hætt við atkvæðagreiðslu vegn Trumpcare Hætt hefur við atkvæðagreiðslu í fulltrúadeild bandaríkjaþings um umdeilt heilbrigðisfrumvarp Repúblikana sem koma á í staðinn fyrir heilbrigðislög Baracks Obama 24. mars 2017 20:07 Trump krefst atkvæðagreiðslu um Trumpcare í dag Forsetinn er sagður hafa sett þingmönnunum úrslitakosti - kjósa um frumvarpið í dag eða sitja uppi með Obamacare. 24. mars 2017 08:05 Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira
Áfall fyrir Trump: Hætt við atkvæðagreiðslu vegn Trumpcare Hætt hefur við atkvæðagreiðslu í fulltrúadeild bandaríkjaþings um umdeilt heilbrigðisfrumvarp Repúblikana sem koma á í staðinn fyrir heilbrigðislög Baracks Obama 24. mars 2017 20:07
Trump krefst atkvæðagreiðslu um Trumpcare í dag Forsetinn er sagður hafa sett þingmönnunum úrslitakosti - kjósa um frumvarpið í dag eða sitja uppi með Obamacare. 24. mars 2017 08:05