Lífið

Nýr förunautur doktorsins samkynhneigður

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Pearl Mackie og Peter Capaldi við tökur á nýjustu þáttaröð Doctor Who.
Pearl Mackie og Peter Capaldi við tökur á nýjustu þáttaröð Doctor Who. Vísir/Getty
Bill Pott, ný persóna í þáttunum Doctor Who, er fyrsti förunautur doktorsins, titilpersónu þáttanna, sem er opinberlega samkynhneigður.

Þátturinn hefur notið gríðarmikilla vinsælda í Bretlandi um árabil en leikkonan Pearl Mackie, sem fer með hlutverk Potts, er ánægð með þróunina

„Þetta ætti ekki að vera stórmál nú á 21. öldinni. Það er kominn tími til, finnst ykkur það ekki?“ sagði hún í viðtali við BBC. Mackie benti einnig á að kynhneigðin væri aðeins lítill hluti af persónuleika karaktersins, sem hún væri mjög ánægð með.

Förunautur doktorsins er eitt af ástælustu hlutverkunum í bresku sjónvarpi. Áður hafa leikarar á borð við Billie Piper, Catherine Tate og Elisabeth Sladen farið með hlutverkið.

Nýjasta þáttaröðin af Doctor Who verður frumsýnd á BBC One í apríl. Þetta verður síðasta þáttaröð Peters Capaldi sem leikið hefur aðalhlutverk þáttanna síðan árið 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×