Einn og sami sérfræðingurinn rannsakaði 550 muni frá Gunnari sem innihéldu barnaklám Birgir Olgeirsson skrifar 4. apríl 2017 16:30 Gunnar Jakobsson
Lögreglan á Suðurlandi hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna rannsóknar á máli Gunnars Jakobssonar. Hann var nýverið dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar eftir að hafa játað að hafa í sinni vörslu 48.212 ljósmyndir og 484 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt. Fangelsisvistin var skilorðsbundin að öllu leiti, sem þýðir að hann þarf ekki að sitja inni haldi hann skilorði, annars vegar vegna skýlausrar játningar hans og hins vegar vegna dráttar sem varð á rannsókn málsins hjá lögreglu. Málið kom fyrst upp þann 10. janúar 2013 en rúmum fjórum árum síðar, eða 30. mars síðastliðinn, var dómur kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands. Lögreglan segir rannsóknina hafa verið fordæmalausa því við húsleit hjá Gunnari fundust 550 munir sem grunur var um að innihéldu tölvugögn með barnaklámi, þar á meðal tölvur, harðir diskar, minnislyklar og geisladiskar. Allt var þetta sent til tölvurannsóknadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeirri rannsókn lauk í mars árið 2014. Í júlí árið 2015 óskaði ríkissaksóknari eftir frekari rannsókn á tölvugögnum en þeirri vinnu lauk í október árið 2016. Lögreglan tekur fram að á rannsóknartímanum urðu breytingar á lögum um ákæruvald og fluttist það frá ríkissaksóknara til lögreglustjóra. Í tilkynningunni kemur fram að einn og sami sérfræðingurinn hjá tölvudeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi annast rannsókn þessara gagna allra í bæði skiptin. „Vinna sem þessi tekur á og er það mat lögreglu á Suðurlandi að hann hafi unnið þrekvirki með vinnu sinni enda reyna rannsóknir sem þessar verulega á andlegt þrek heilbrigt hugsandi manna,“ segir í tilkynningunni sem má lesa í heild hér fyrir neðan:Fréttatilkynning vegna dóms Héraðsdóms Suðurlands nr. 357/2016Í Héraðsdómi Suðurlands var þann 30. mars s.l. kveðinn upp dómur í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Jakobssyni vegna meintra brota hans gegn 210. gr. a. almennra hegningalaga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum 48.212 ljósmyndir og 484 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt í tölvugögnum sem fundust í hans vörslu.Gunnar var sakfelldur fyrir brot sín og dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar en hún skilorðsbundin að öllu leiti annarsvegar vegna skýlausrar játningar hans á brotum þeim sem honum voru gefin að sök og hinsvegar þess dráttar sem varð á rannsókn málsins hjá lögreglu og ákæruvaldi. Refsirammi fyrir brot af þessu tagi er að hámarki 2 ár.Hér verður ferill rannsóknarinnar rakinn.Málið kemur upp þann 10. janúar 2013 en þá er dómfelldi handtekinn vegna gruns um áreit við börn en samkvæmt tilkynningu sem handtakan byggði á lék grunur á broti eða brotum hans gagnvart börnum á vistheimili á Suðurlandi á árinu 2010. Daginn eftir var hann úrskurðaður í viku langt gæsluvarðhald vegna rannsóknar málsins.Við húsleit vegna þessa máls voru haldlagðir 550 munir sem grunur var um að innihéldu tölvugögn með barnaklámi. Um var að ræða tölvur, harða diska, minnislykla, geisladiska o.fl. Þessi fjöldi muna er fordæmalaus í rannsóknum refsimála á Íslandi.Þessi tvö mál voru rannsökuð samhliða en fyrra málið, það sem snéri að meintum brotum gegn börnum síðan klofið frá rannsókninni og sent ríkissaksóknara þann 31. mars 2014 sem fellir það niður þann 01.06.2015 með vísan í 145. gr. sakamálalaga nr. 88/2008 þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellis.Það gríðarlega magn af tölvugögnum sem fannst við húsleitina var sent tölvurannsóknardeild Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu til úrvinnslu. Niðurstöður á rannsókn einstakra muna eru að berast frá deildinni með reglulegu millibili til lögreglunnar á Selfossi þar til í mars 2014 þegar þeirri rannsókn lauk og er málið sent ríkissaksóknara til ákærumeðferðar 31.mars 2014.Með bréfi dags. 10. 07.2015 óskar ríkissaksóknari eftir frekari rannsókn á tölvugögnum þeim sem áður hafði verið skilað til hans og tók þá á ný við vinna tölvudeildar LRH. Um var að ræða mjög umfangsmikla endurvinnslu og breytta framsetningu gagna sem kallaði á nýja yfirferð nær allra gagna sem áður höfðu verið rannsökuð. Þeirri vinnu lauk 02.10.2016 og var málið þá afgreitt til ákærusviðs Lögreglustjórans á Suðurlandi sem tók málið til meðferðar 14.10.2016 og var ákærða birt þann 16.01.2017. Meðferð málsins lauk fyrir héraðsdómi með dómsuppkvaðningu þann 30. mars s.l. eins og fram hefur komið.Á rannsóknartímanum urðu breytingar á lögum um ákæruvald og fluttist það frá ríkissaksóknara til lögreglustjóra.Fyrir liggur að á þeim tíma sem unnið var að rannsókninni var tölvudeild LRH jafnframt undirlögð af rannsóknum tölvugagna vegna fjármunabrota og annarra mála sem upp komu. Að auki má leiða að því líkum að niðurskurður til löggæslu hafi ekki hjálpað til, hvorki þar eða hjá öðrum stofnunum sem að málsmeðferðinni komu.Einn og sami sérfæðingur hjá tölvudeild LRH annaðist rannsókn þessara gagna allra í bæði skiptin. Vinna sem þessi tekur á og er það mat lögreglu á Suðurlandi að hann hafi unnið þrekvirki með vinnu sinni enda reyna rannsóknir sem þessar verulega á andlegt þrek heilbrigt hugsandi manna.
Tengdar fréttir Ekki tekið tillit til fyrri dóms yfir Gunnari vegna fyrningar sakavottorðs Gunnar, áður Roy Svanur Shannon, er dæmdur barnaníðingur en ekki var tekið tillit til fyrri dóms yfir honum í málinu vegna þess að fyrri dómurinn er ekki lengur skráður á sakavottorði hans. 4. apríl 2017 14:29 Þekktur barnaníðingur slapp með skilorð vegna dráttar á rannsókn Gunnar Jakobsson dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi. 3. apríl 2017 22:54 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Sjá meira
Ekki tekið tillit til fyrri dóms yfir Gunnari vegna fyrningar sakavottorðs Gunnar, áður Roy Svanur Shannon, er dæmdur barnaníðingur en ekki var tekið tillit til fyrri dóms yfir honum í málinu vegna þess að fyrri dómurinn er ekki lengur skráður á sakavottorði hans. 4. apríl 2017 14:29
Þekktur barnaníðingur slapp með skilorð vegna dráttar á rannsókn Gunnar Jakobsson dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi. 3. apríl 2017 22:54