Hnífstungan á Metro: Annar hinna handteknu í fjögurra vikna gæsluvarðhald Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. apríl 2017 15:49 Blóðslettur voru úti um allt gólf á veitingastaðnum eftir árásina. Loftmyndir.is
Sautján ára karlmaður hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna grunaður um að hafa stungið annan mann fyrir utan veitingastaðinn Metro í Kópavogi í gær. Lögreglan fór fram á vikulangt varðhald, að því er greint er frá á vef RÚV.Tveir menn voru handteknir vegna málsins í gær, báðir á tvítugsaldri, en hvorugur þeirra hefur komið við sögu lögreglu áður. Öðrum þeirra var sleppt. Í samtali við Vísi fyrr í dag sagði Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn að svo virðist sem ekki séu tengsl á milli árásarmannanna og mannsins sem var stunginn en hann hlaut alvarlega áverka og var fluttur á gjörgæslu í kjölfar árásarinnar. Hann er ekki í lífshættu. Nokkur vitni voru að árásinni, bæði gestir veitingastaðarins og starfsmenn hans. Þó nokkrir hafa verið yfirheyrðir í tengslum við rannsókn málsins sem er langt kominn. Einn starfsmanna Metro sem var á vakt í gærkvöldi þegar árásin átti sér stað sagði í samtali við Vísi að hún hafi verið að þrífa þegar hún heyrði manninn reka upp öskur. Hún hafi svo komið fram og þá hafi verið blóð úti um allt. Mennirnir tveir voru handteknir um klukkutíma eftir að árásin varð, annar mannanna var handtekinn á Ártúnshöfða en hinn við Smáraskóla.
Tengdar fréttir Hnífstungan á Metro: Ekki tengsl á milli árásarmannanna og fórnarlambsins Mennirnir tveir sem handteknir voru í gærkvöldi grunaðir um hnífstunguárás á veitingastaðnum Metro í Kópavogi voru yfirheyrðir í gær af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru enn í haldi lögreglu. 4. apríl 2017 10:32 Hnífsstunga á Metro: „Það var blóð út um allt“ Karlmaður á fertugsaldri var stunginn á skyndbitastaðnum Metro í Kópavogi í kvöld. 3. apríl 2017 23:19 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira
Hnífstungan á Metro: Ekki tengsl á milli árásarmannanna og fórnarlambsins Mennirnir tveir sem handteknir voru í gærkvöldi grunaðir um hnífstunguárás á veitingastaðnum Metro í Kópavogi voru yfirheyrðir í gær af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru enn í haldi lögreglu. 4. apríl 2017 10:32
Hnífsstunga á Metro: „Það var blóð út um allt“ Karlmaður á fertugsaldri var stunginn á skyndbitastaðnum Metro í Kópavogi í kvöld. 3. apríl 2017 23:19