Eðli mannsins er engum óviðkomandi Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 13. apríl 2017 11:00 Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson stjórnar umræðunum um Pablo Escobar. Vísir/Anton „
Það er alltaf forvitnilegt og áhugavert að kynna sér merkilega atburði. Saga Pablos Escobar og mannanna sem áttu þátt í að binda enda á veldi hans er löng og margslungin,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari en hann mun stjórna umræðum í Hörpu um hættulegasta eiturlyfjabarón heims, konung kókaínsins, sjálfan Pablo Escobar. „DEA“-fulltrúarnir Javier Pena og Steve Murphy, mennirnir sem felldu Pablo Escobar, mæta á svæðið og ræða málið frá áhugaverðum vinklum. „Við fáum að kynnast raunverulegu lögreglumönnunum sem áttu stóran þátt í að fella hann. Saga þeirra Javiers og Steves er grundvöllurinn að framvindu og sögu Netflix-þáttaseríunnar Narcos sem slegið hefur í gegn um allan heim,“ segir Jóhannes Haukur spenntur.Pablo Escobar ásamt eiginkonu sinni, Victoríu Henao.Það er óhætt að segja að nánast allir eru spenntir og forvitnir að vita meira um þetta mál. „Við sem manneskjur höfum alltaf áhuga á sögum um fólk, ekki síst svo við getum speglað okkur í þeim sjálf. Að fá að kynnast manni eins og Pablo Escobar í gegnum tuttugu klukkustundir af leiknu sjónvarpsefni er afskaplega magnað,“ segir Jóhannes Haukur og bætir við að þetta veki svo margar spurningar um mannlegt eðli.Geta Íslendingar tengt við mál af þessu tagi? „Hiklaust. Rétt eins og með allt sammannlegt. Eðli mannsins er okkur ekki óviðkomandi frekar en öðrum,“ segir Jóhannes. Óhætt er að segja að Javier Pena og Steve Murphy séu algjörir sérfræðingar á sínum sviðum en árið 1984 gekk Pena til liðs við bandarísku fíkniefnalögregluna þar sem hann tók að sér verkefni í Bogotá, höfuðborg Kólumbíu. Það var þá sem hann og félagi hans, Steve Murphy, ákváðu að þeir skyldu leggja Pablo Escobar og Medellín fíkniefnahringinn að velli. Í dag er hann talinn vera einn helsti sérfræðingur heims í Medellín-málinu. DEA-fulltrúarnir Javier Pena og Steve Murphy, mennirnir sem felldu Pablo Escobar.Vísir/GettyÁ kvöldinu sjálfu mun Jóhannes stjórna umræðum eftir að þeir félagar hafa lokið erindi sínu. „Gestir fá þarna einstakt tækifæri til að spyrja þessa menn spjörunum úr. Það er örugglega margt sem brennur á fólki eftir áhorf á þættina. Ekki síst hvað varðar muninn á raunverulegu atburðunum og því sem kemur fram í þáttunum. Því þótt þeir séu byggðir á raunverulegri atburðarás þá er það þannig í svona þáttum að það er alltaf eitthvert listrænt frelsi tekið til að mynda frásögn sem inniheldur dramatíska boga sem henta forminu,“ segir Jóhannes. Undirbúningur fyrir kvöldið er í hámarki og Jóhannes segist liggja yfir þáttunum, ásamt því að lesa sér til um söguna á bak við Pablo Escobar. „Ég hlakka orðið mikið til að hitta þessa menn, alvöru hetjur. Sjálfur hef ég fullt af spurningum handa þeim og ég er viss um að íslenskir áhorfendur hafa líka fullt af áhugaverðum spurningum. Ég bíð spenntur eftir þessu kvöldi,“ segir Jóhannes að lokum.
Menning Netflix Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Fleiri fréttir Kynntu dagskrá RIFF 2024 Þakkaði fyrir sig á íslensku Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni Snerting framlag Íslands til Óskarsins „Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“ Hlátur og grátur á Ljósvíkingum Ljósbrot valin besta norræna kvikmyndin Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Svörtu söndum 2 Ældi næstum úr stressi á Cannes Myndaveisla: Rauður dregill og troðfullt hús á Ljósbroti Snerting hlaut eftirsótt verðlaun Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Jökull í Kaleo í Glæstar vonir Ljósbrot í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna Ólafur Darri og Hera Hilmars saman á skjánum í fyrsta sinn Lynch ólíklegur til að leikstýra aftur vegna Covidhræðslu Stórstjörnur í kvikmynd um fundinn í Höfða Sjá meira