Vill sjö milljónir í bætur vegna hættulegrar líkamsárásar á umferðarljósum á Reykjanesbraut Birgir Olgeirsson skrifar 18. apríl 2017 20:58 Farið er fram á að sá sem sakaður er um árásina greiði tveimur ólögráða börnum mannsins sem fyrir árásinni varð þjáningar- og miskabætur upp á samtals þrjár milljónir króna. Vísir/GVA
Varahéraðssaksóknari hefur ákært Daníel Rafn Guðmundsson fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á umferðarljósum á Reykjanesbraut, neðan við Byko Breiddinni í Kópavogi, í nóvember árið 2011. Þar á Daníel Rafn, samkvæmt ákæru, að hafa veist með ofbeldi að karlmanni á fimmtugsaldri þar sem hann sat sem farþegi í bíl og slegið hann nokkrum hnefahöggum í andlitið og sparkað ítrekað í andlit hans og höfuð. Þetta hafði þær afleiðingar, að sögn saksóknara, að karlmaðurinn sem varð fyrir árásinni hlaut sár á hægra augnlok, sár á nef sem sauma þurfti saman, brot í hægri augntóft, brot á nefbeini auk þess sem tennur brotnuðu. Sá sem varð fyrir árásinni fer fram á tvær milljónir króna í miskabætur frá Daníel Rafni. Þá fer sá sem fyrir árásinni varð einnig fram á að Daníel Rafn verði dæmdur til að greiða honum skaðabætur vegna kostnaðar við tannviðgerðir upp á 2,1 milljón króna. Auk þess er farið fram á að Daníel greiði tveimur ólögráða börnum mannsins sem fyrir árásinni varð þjáningar- og miskabætur upp á samtals þrjár milljónir króna.
Tengdar fréttir 18 mánaða fangelsi: Stefán Logi fær tvær milljónir í bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Daníel Rafn Guðmundsson í átján mánaða fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás á Stefán Loga Sívarsson í Ystaseli í maí 2013. 16. apríl 2015 09:15 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Sjá meira
18 mánaða fangelsi: Stefán Logi fær tvær milljónir í bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Daníel Rafn Guðmundsson í átján mánaða fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás á Stefán Loga Sívarsson í Ystaseli í maí 2013. 16. apríl 2015 09:15