City með fleiri menn en United í úrvalsliði Manchester Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. apríl 2017 11:00 Paul Pogba er eini rauði á miðjunni. vísir/getty
Sky Sports hefur sett saman úrvalslið Manchester fyrir borgarslaginn á morgun þegar Manchester City tekur á móti Manchester United í mikilvægum leik í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Mikið er undir hjá báðum liðum en allt stefnir í fyrsta titlalausa tímabilið hjá Pep Guardiola síðan hann fór út í þjálfun á meðan United er búið að vinna deildabikarinn og er komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar. Manchester City er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 64 stig en Manchester United er í fimmta sæti með 63 stig. United getur því hoppað upp fyrir samborgara sína með sigri annað kvöld og verið með Meistaradeildarörlögin í eigin höndum. Þegar leikmannahópar liðanna eru settir saman komast í byrjunarliðið sex leikmenn Manchester City og fimm leikmenn Manchester United, að mati Sky Sports. David De Gea er í markinu og vörnin skiptist jafnt. Antonio Valencia er í hægri bakverði og Aleksandar Kolarov í þeim vinstri. Nicolas Otamendi og Daley Blind eru miðverðir. Paul Pogba er eini leikmaður United sem kemst á miðjuna í leikkerfinu 4-4-2. Raheem Sterling og Kevin De Bruyne eru á vængjunum og David Silva við hlið Pogba á miðjunni. Zlatan og Sergio Agüero eru svo í framlínunni.mynd/sky sports
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Sjá meira