Íslenska ríkið braut gegn Jóni Ásgeiri og Tryggva Atli Ísleifsson skrifar 18. maí 2017 08:47 Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur dæmt að íslenska ríkið hafi brotið gegn þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni vegna málaferla fyrir íslenskum dómstólum tengdum skattalagabrotum í rekstri Baugs og fjárfestingafélagsins Gaums. Dómstóllinn dæmdi íslenska ríkið til að greiða bæði Jóni Ásgeiri og Tryggva fimm þúsund evrur, auk alls 15 þúsund evra vegna málskostnaðar. Þeir Jón Ásgeir og Tryggvi hlutu ásamt Kristínu Jóhannesdóttur skilorðsbundinn dóm árið 2013 fyrir skattalagabrot, en þeir kærðu dóminn til Mannréttindadómstólsins þar sem þeir sögðu málið brjóta gegn meginreglunni um bann við endurtekinni málsmeðferð. Áður höfðu þeir verið dæmdir til greiðslu sektar fyrir sömu brot. Hæstiréttur dæmdi á sínum tíma Jón Ásgeir í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 62 milljónir króna sektar fyrir brot á skattalögum. Tryggvi hlaut átján mánaða skilorðsbundið fangelsi og var dæmdur til að greiða 32 milljónir króna í sekt. Í dómi Mannréttindadómstólsins kemur fram að þeir Jón Ásgeir og Tryggvi hafi enn ekki greitt sektirnar sem um ræðir og féllst dómurinn á kröfu þeirra um að greiðslurnar yrðu felldar niður.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira