Varað við mikilli úrkomu á landinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. maí 2017 16:33 Úrkomuspáin fyrir klukkan 18 á morgun. mynd/veðurstofan
Veðurstofan varar við talsverðri eða mikilli úrkomu á landinu á morgun, föstudag, einkum á Austfjörðum og Suðausturlandi austan Öræfa. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að úrkoman sem falli verði að öllum líkindum rigning eða slydda á láglendi en snjókoma til fjalla. Því sé útlit fyrir versnandi ferðaveðri á þessum slóðum og er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með veðurspám og færð á vegum. Á laugardag mun svo heldur hlýna í veðri og dregur þá úr úrkomu. Frá hádegi á laugardegi og fram á sunnudag má þó búast við talsverðri úrkomu austan til á landinu með tilheyrandi leysingum. Það má því gera ráð fyrir auknu rennsli í ám og lækjum á svæðinu og eru staðbundin flóð líkleg.Veðurhorfur næstu daga:Norðaustan 13-23 m/s, hvassast suðaustantil, undir Eyjafjöllum og í Öræfum, og víða hvassir vindstrengir við fjöll. Sums staðar dálítil él fyrir norðan, rigning með köflum suðaustantil, en þurrt að mestu vestanlands. Bætir í úrkomu á morgun, talsverð eða mikil rigning eða slydda austanlands upp úr hádegi, en snjókoma til fjalla. Annars úrkomuminna. Austan 15-23 annað kvöld, hvassast á annesjum norðantil og á Vestfjörðum með aukinni ofankomu. Hiti 0 til 8 stig að deginum, mildast SV-til.Á laugardag:Austan 10-18 m/s og rigning með köflum, en mikil rigning austantil. Hægari síðdegis og úrkomuminna. Hlýnandi veður.Á sunnudag:Austlæg átt, 8-15 m/s, hvassast á annesjum. Rigning eða talsverð rigning suðaustan- og austanlands, en annars smá skúrir. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast vestanlands.Á mánudag:Austlæg átt 5-10 m/s og úrkomulítið, en hvessir með rigningu SA-til um kvöldið. Hiti breytist lítið.Á þriðjudag:Austlæg átt. Rigning sunnantil, en annars skýjað með köflum og sums staðar skúrir. Hiti 8 til 15 stig.Á miðvikudag:Útlit fyrir norðaustanátt með kólnandi veðri. Víða skúrir, en þurrt og bjart að mestu suðvestantil.
Veður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira