Þyrlan kölluð til vegna strandaglóps sem fór í Skaftá Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. júlí 2017 23:14 Maðurinn er kominn um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Björgunarsveitin
Björgunarsveitir á Suðurlandi og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út í kvöld til aðstoðar tíu manna hópi franskra skáta um tvítugt sem voru að vaða í Skaftá. Skátarnir voru strandaglópar í tveimur hólmum í Skaftá norðan Búlands. Björgunarsveitir náðu til níu skátanna en þyrlan var kölluð til vegna þess tíunda. Sá hafði orðið viðskila við hópinn og í sjálfheldu í öðrum hólma. Björgunarsveitarmenn náðu sambandi við manninn í hólmanum en treystu sé ekki út í hólmann á þeim tækjabúnaði sem þeir höfðu yfir að ráða enda áin mjög straumhörð.Maðurinn beið í rúmar tvær klukkustundir kaldur og blautur.BjörgunarsveitinDavíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að skátinn hafi verið blautur, kaldur og í sjálfheldu. Rúmlega tveir tímar liðu frá því útkallið barst og þangað til þyrlan kom á staðinn. Maðurinn sem var í sjálfheldu var fluttur á brott með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hinir skátarnir níu voru ferjaðir með bílum björgunarsveita á þurrt og eru á leið í fjöldahjálparstöð á Kirkjubæjarklaustri.Jón Hermannsson, svæðisstjórnarmaður segir að björgunaraðgerðin hafi gengið vel. Allir séu heilir á húfi en bætir við þetta verkefni hafi tekið á „bæði á taugar og líkama.“
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira