Austurríki er komið í undanúrslit á Evrópumótinu í knattspyrnu kvenna eftir að hafa slegið út Spánverja í vítaspyrnukeppni í Willem í dag.
Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma, en Spánn var mun sterkari aðilinn. Þær voru meira með boltann og áttu fleiri skot, en náðu ekki að skora.
Í framlengingunni leit heldur ekkert mark dagsins ljós og því varð að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem úrslitin réðust.
Austurríki skoraði úr öllum sínum spyrnum á meðan Silvia Meseguer klúðraði víti fyrir Spán og Austurríki þar með komið í undanúrslit þar sem liðið mætir Danmörku.
Þetta er fyrsta stórmót Austurríkis og árangurinn glæsilegur.
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)