Í hinum leik kvöldsins í C-riðli, á Evrópumótinu í fótbolta sem fer fram í Hollandi, skildu Sviss og Frakkland jöfn 1-1.
Sviss stillti upp frekar varnarsinnuðu byrjunarliði og lágu töluvert til baka á upphafsmínútum leiksins en Frakkar voru meira með boltann og sóttu á vörn Sviss.
Það dró svo til tíðinda eftir 17 mínútna leik þegar Eva Perisset, leikmaður Frakklands, að líta rauða spjaldið eftir að hafa brotið á Ramonu Bachmann er hún var við það að sleppa í gegn um vörn Sviss.
Aðeins tveimur mínútum síðar kom Ana Crnogorčević Sviss yfir í leiknum eftir að hafa skallað boltann í markið eftir sendingu frá Martinu Moser.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleiknum og Sviss fór því með gott forskot inn í þann síðari.
Síðari hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri, Frakkar meira með boltann og Sviss að verjast. Bæði lið fengu nokkur færi en hvorugu liðanna náði að koma boltanum í netið.
Það var svo ekki fyrr en á 76. mínútu þegar Frakkar fengu aukaspyrnu sem að Camille Abily tók. Hún spyrnti á markið og Gaelle Thalmann, markvörður Sviss, gerði sig seka um slæm mistök þegar að hún missti boltann í gegnum sig og inn í markið. Frakkar búnir að jafna.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og 1-1 jafntefli niðurstaðan, sem þýðir að Frakkland tekur annað sæti í riðlinum og fer áfram í 8-liða úrslitin.
Frakkland fer áfram eftir jafntefli gegn Sviss
