Tíu þúsund manns þurft að flýja heimili sín Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. júlí 2017 06:34 Slökkvistarf var unnið á eyjunni Korsíku í gær. Vísir/AFP
Skógareldar geisa nú í suð-austurhluta Frakklands en tíu þúsund manns var gert að flýja heimili sín vegna eldanna í nótt. Skógareldar hafa geisað undanfarna daga á eyjunni Korsíku og í bæjunum Carros og Saint-Tropez í Frakklandi. Veður í suðausturhluta landsins hefur verið óvenju heitt, þurrt og vindasamt undanfarnar vikur og því hefur reynst erfitt að ráða við eldana. Í gær höfðu íbúar um hundrað heimila á svæðinu flúið híbýli sín að beiðni yfirvalda en mikill fjöldi hefur nú bæst í þann hóp. Þá hafa fjölmargir slökkviliðsmenn verið kallaðir út til að reyna að ráða niðurlögum eldanna að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins. Frönsk yfirvöld hafa einnig beðið nágranna sína innan Evrópusambandsins að rétta sér hjálparhönd í baráttunni við skógareldana. Um fjögur þúsund hektarar af landi hafa orðið eldunum að bráð. Að minnsta kosti tíu þúsund manns hafa nú flúið heimili sín í suð-austurhluta Frakklands, þar á meðal á hinni svokölluðu Frönsku rivíeru og á eyjunni Korsíku. Ástandið er þar að auki einna verst við bæinn Saint-Tropez. Svæðið er gríðarlega vinsæll áfangastaður ferðamanna á sumrin en íbúafjöldi allt að þrefaldast á þessum árstíma, að sögn yfirvalda.
Tengdar fréttir Frakkar berjast við skógarelda Íbúum um hundrað heimila hefur verið gert að yfirgefa híbýli sín í forvarnarskyni. 25. júlí 2017 08:43 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira
Frakkar berjast við skógarelda Íbúum um hundrað heimila hefur verið gert að yfirgefa híbýli sín í forvarnarskyni. 25. júlí 2017 08:43