Lögregla kom upp um stóra ræktun á Krókhálsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. ágúst 2017 12:37
Fíkniefnalögreglumenn réðust til aðgerða í kjallara iðnaðarhúsnæðis á Krókhálsi 6 á tólfta tímanum í dag. Mikið magn kannabisplantna var gert upptækt og sömuleiðis búnaður tengdur ræktun sem virðist hafa verið umtalsverð. Fimm lögreglubílar voru við húsið þegar mest var, tveir ómerktir á vegum fíkniefnadeildar og þrír hefðbundnir. Lögregla hefur verið að tæma rýmið undanfarin sólarhring en plönturnar fylltu átta stóra hvíta plastpoka. Húsið að Krókhálsi 6 er afar stórt en þar var meðal annars Stöð 2 til húsa á árum áður. Í dag eru ýmsir aðilar með aðstöðu í húsinu og þeirra á meðal vefsíðan Fótbolti.net. Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolti.net, var á vaktinni á tólfta tímanum þegar aðgerð lögreglu hófst. Hann segir þá fyrst hafa orðið varir við eitthvað skrýtið þegar megn kannabislykt gaus upp í húsnæðinu. „Þetta var umtalsvert meiri lykt en í Amsterdam,“ segir Elvar Geir sem var í hollensku borginni á dögunum að fjalla um Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu. Hann fylgdist í framhaldinu með aðgerðum lögreglu þar sem hver pokinn á fætur öðrum af plöntum var borinn út eins og sjá má á meðfylgandi myndbandi.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Sjá meira