Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. október 2026 14:01 Hakakrossinn var rispaður á bíl Kristjáns. Bílar hafa verið rispaðir í að minnsta kosti þremur hverfum Reykjavíkur undanfarna daga. Íbúi í Vesturbæ segir ljóst að um mikið tjón sé að ræða fyrir íbúa en sjálfur greiddi hann 150 þúsund krónur fyrir viðgerð vegna hakakross sem rispaður var á bíl hans.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa borist sex tilkynningar um skemmdarverk á bílum í þessum mánuði. Málið er til rannsóknar. Mikil umræða fer nú fram á samfélagsmiðlum þar sem íbúar í Vesturbæ, Hlíðunum og Vogahverfi hafa birt myndir af bílum sem hafa verið rispaðir. „Ég hef ekkert heyrt í lögreglunni enn, þetta er væntanlega allt í vinnslu,“ segir Kristján Ingi Einarsson íbúi við Flyðrugranda í Vesturbænum í samtali við Vísi. Hann birti mynd af bíl sínum á miðvikudag í íbúahópi en hakakross hafði verið rispaður á bílinn. Kristján segist hafa fengið mikil viðbrögð við færslunni en hann fór með bílinn í viðgerð hið fyrsta enda ekki hægt að keyra um með hakakross á bílnum. Meðal þess sem íbúar hafa rætt sín á milli er hvort að um svokallað Tik-Tok trend sé að ræða á samfélagsmiðlum. Hvað kostar að gera við svona? „Tja, ég þarf að borga allavega 150 þúsund krónur í sjálfsábyrgð. Þannig þetta eru töluverðir fjármunir og ég tala nú ekki um ef það eru margir að lenda í þessu. Það mikilvægt að það sé rætt um þetta,“ segir Kristján. Þá birti Brynja Þóra Guðnadóttir íbúi í Stórholti myndband af óprúttnum aðila í hettupeysu sem rispaði bíl hennar með lykli í síðustu viku. Hún segir bíl sinn hafa verið kaskó tryggðan og hún því líkt og Kristján borgað 150 þúsund krónur í sjálfsábyrgð. „Þetta gerist örfáum dögum fyrr þarna í minni götu, aðfaranótt föstudags í síðustu viku um hálf tvö leytið. Það var annar bíll í götunni sem var líka rispaður og maður myndi halda að það væri þá sami aðili að verki, þó maður viti það ekki. Svo nokkrum dögum síðar gerist þetta í vesturbænum.“ Lögregla hefur biðlað til íbúa sem kunna að hafa upplýsingum um málið að hafa samband við lögreglu. Þeim er bent á að hringja í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á gudmundur.petur@lrh.is. Lögreglan óskaði sér í lagi eftir upplýsingum um mannaferðir á þessum stöðum. Klippa: Bíll rispaður í Stórholti í Reykjavík
Lögreglumál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira