Bók á leiðinni frá James Comey Kjartan Kjartansson skrifar 2. ágúst 2017 23:09 James Comey getur líklega sagt margar áhugaverðar sögur. Vísir/Getty
Frásagnir sem ekki hafa heyrst áður eru á meðal þess sem mun koma fram í bók sem James Comey, fyrrverandi forstjóri alríkislögreglunnar FBI sem Donald Trump forseti rak úr starfi, er að skrifa. Viðfangsefni bókarinnar á að vera stjórnun og ákvarðanatökur, að sögn Flatiron Books, útgefanda Comey. Breska ríkisútvarpið BBC segir að til standi að bókin komi út næsta vor en að hún hafi enn ekki hlotið neinn titil. Margir hafa eflaust áhuga á að heyra sögurnar sem Comey hefur að segja. Sem forstjóri FBI hefur hann komið við sögu í nokkrum stærstu málunum sem hafa valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum síðustu misserin. Þannig var hann yfir rannsókninni á tölvupóstum Hillary Clinton frá þeim tíma þegar hún var utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Comey ákvað upphaflega að gefa ekki út neinar ákærur vegna þeirra en gagnrýndi þó að Clinton hefði notast við eigin póstþjón til að senda pósta sem vörðuðu embættisfærslur hennar.Þrándur í Götu bæði Clinton og TrumpÞegar aðeins örfáir dagar voru til forsetakosninganna síðasta haust varpaði Comey svo sprengju inn í kosningabaráttuna þegar hann greindi frá því að FBI hefði aftur opnað rannsóknina á tölvupóstum Clinton. Ekkert frekar kom út úr þeirri skoðun en uppákoman er jafnvel talin hafa kostað Clinton sigur í kosningunum. Eftir að Donald Trump tók við sem forseti reyndi hann að fá Comey til að sverja sér hollustu sína og bað hann um að láta rannsókn á bandamanni sínum falla niður. Síðar rak Trump Comey og sagði það hafa verið vegna rannsóknar FBI á meintu samráði framboðs hans við Rússa.
Tengdar fréttir Trump segist vera til rannsóknar fyrir að hafa rekið Comey Donald Trump, Bandaríkjaforseti, fór á Twitter fyrr í dag og staðfesti það að hann væri til rannsóknar vegna brottvikningar James Comey, fyrrverandi forstjóra Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, úr embætti. 16. júní 2017 17:51 Trump véfengir vitnisburð Comey varðandi tvö veigamikil atriði Donald Trump, Bandaríkjaforseti, véfengir tvö veigamikil atriði í vitnisburði James Comey, fyrrverandi forstjóra Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. 8. júní 2017 15:34 Trump tjáir sig um vitnisburð Comey eftir langa þögn Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, stóðst freistinguna og tísti ekkert á meðan James Comey, fyrrverandi forstjóri FBI, svaraði spurningum njósnamálanefndar Bandaríkjaþings í gær um samskipti hans við Trump. Hann er þó mættur aftur á Twitter. 9. júní 2017 10:58 Comey segir Trump hafa óskað eftir að slakað yrði á rannsókn FBI á tengslum Flynn við Rússa Fyrrverandi forstjóri FBI telur engan vafa leika á að rússnesk stjórnvöld hafi reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á síðasta ári með ýmsum hætti. 8. júní 2017 19:59 Comey var viss um að Trump myndi ljúga um fundi þeirra Fyrsta sprengjan í vitnisburði fyrrverandi forstjóra FBI er sprungin. 8. júní 2017 15:01 Trump segist ekki hafa tekið upp samræðurnar við Comey Bandaríkjaforseti segist ekki hafa tekið upp samræður sínar við James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar, þrátt fyrir að hafa ýjað að slíku áður. 22. júní 2017 17:44 Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Fleiri fréttir Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Sjá meira
Trump segist vera til rannsóknar fyrir að hafa rekið Comey Donald Trump, Bandaríkjaforseti, fór á Twitter fyrr í dag og staðfesti það að hann væri til rannsóknar vegna brottvikningar James Comey, fyrrverandi forstjóra Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, úr embætti. 16. júní 2017 17:51
Trump véfengir vitnisburð Comey varðandi tvö veigamikil atriði Donald Trump, Bandaríkjaforseti, véfengir tvö veigamikil atriði í vitnisburði James Comey, fyrrverandi forstjóra Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. 8. júní 2017 15:34
Trump tjáir sig um vitnisburð Comey eftir langa þögn Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, stóðst freistinguna og tísti ekkert á meðan James Comey, fyrrverandi forstjóri FBI, svaraði spurningum njósnamálanefndar Bandaríkjaþings í gær um samskipti hans við Trump. Hann er þó mættur aftur á Twitter. 9. júní 2017 10:58
Comey segir Trump hafa óskað eftir að slakað yrði á rannsókn FBI á tengslum Flynn við Rússa Fyrrverandi forstjóri FBI telur engan vafa leika á að rússnesk stjórnvöld hafi reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á síðasta ári með ýmsum hætti. 8. júní 2017 19:59
Comey var viss um að Trump myndi ljúga um fundi þeirra Fyrsta sprengjan í vitnisburði fyrrverandi forstjóra FBI er sprungin. 8. júní 2017 15:01
Trump segist ekki hafa tekið upp samræðurnar við Comey Bandaríkjaforseti segist ekki hafa tekið upp samræður sínar við James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar, þrátt fyrir að hafa ýjað að slíku áður. 22. júní 2017 17:44