Halldór Orri gæti verið frá út tímabilið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. september 2017 14:45 Halldór Orri Björnsson fagnar marki með FH í sumar. Vísir/Anton
Tímabilið gæti verið búið hjá Halldóri Orra Björnssyni, leikmanni FH, eftir að hann meiddist á fingri í leik Stjörnunnar og FH í ágúst. Halldór Orri festi tvo fingur á milli auglýsingaskilta á Samsungvellinum og slitnaði við það sin í vísifingri hans.Sjá einnig: Pepsi-mörkin: Halldór Orri festi puttanna á milli auglýsingaskilta | Myndband „Það kom í ljós að sin í vísifingrinum slitnaði og ég þurfti að fara í aðgerð daginn eftir leikinn við Stjörnuna. Ég er með spelku sem ég þarf að vera með næstu vikurnar og það er ekki víst hvort ég nái að spila eitthvað meira á þessu tímabili,“ sagði Halldór í viðtali við mbl.is „Þetta var algjör óheppni. Ég lenti á fleygiferð á auglýsingaskiltinu fyrir utan völlinn og það festust tveir puttar á milli þeirra. Langatöngin slapp ágætlega en sinin gaf sig á vísifingrinum. Ég hitti lækninn á vikufresti og staðan er tekin eftir það. Vonandi næ ég að spila meira áður en tímabilið er búið en það er alls ekki víst. Læknirinn sagði mér að það væri hætti á að sinin muni slitna aftur ef ég fer of snemma af stað svo ég verð að fara varlega.“ FH er í 4. sæti Pepsi deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir. FH á þó leik til góða, og eru því fræðilega enn í möguleika að ná Íslandsmeistaratitlinum af Valsmönnum sem eru 12 stigum fyrir ofan Hafnfirðinga í efsta sætinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn Sjá meira