Rúmur helmingur Breta segist ekki trúaður Kjartan Kjartansson skrifar 4. september 2017 21:05 Sérstaklega hefur fækkað í söfnuði ensku biskupakirkjunnar. Myndin er frá Kantaraborg þar sem erkibiskup kirkjunnar situr. Vísir/AFP
Meirihluti svarenda í könnun segist ekki hafa neina trú sem gerð var á Bretlandi. Þetta er í fyrsta skipti sem meirihluti segist ekki trúaður. Hlutfall trúlausra er enn hærra á meðal yngra fólks. Félagsfræðirannsóknamiðstöð Bretlands gerði könnunin í fyrra og náði hún til tæplega þrjú þúsund fullorðinna Breta. Af þeim sögðust 53% vera „án trúarbragða“. Í aldurshópnum 18-25 ára sagðist 71% ekki tilheyra neinni trú, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Aftur á móti sögðust 75% fólks eldri en 75 ára trúuð. Trúhneigð Breta hefur farið hríðminnkandi undanfarna áratugi. Þegar Félagsfræðirannsóknamiðstöðina gerði fyrstu könnunina af þessu tagi árið 1983 sagðist 31% ekki hafa neina trú. Könnunin nú leiðir ennfremur í ljós að fjórir af hverjum tíu sem fæddust inn í trúrækna fjölskyldu telja sig ekki trúaða lengur. Mest hefur fækkunin verið í röðum ensku biskupakirkjunnar. Aðeins 15% sögðust tilheyra kirkjunni í fyrra, tvöfalt færri en árið 2000.
Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira