Mótmæli í St. Louis gegn sýknu lögreglumanns Kjartan Kjartansson skrifar 16. september 2017 21:39 Mótmælandi stendur einn gegn skjaldborg lögreglumanna í St. Louis föstudagskvöldið 15. september. Vísir/AFP
Hundruð manna hafa haldið áfram mótmælum gegn sýknudómi yfir hvítum lögreglumanni sem drap svartan mann í bandarísku borginni St. Louis í dag, annan daginn í röð. Til átaka kom í mótmælunum í gær. Mótmælin brutust út eftir að dómari sýknaði lögreglumanninn Jason Stockley af ákæru um að hafa myrt ungan blökkumann, Anthony Lamar Smith, árið 2011. Smith var skotinn fimm sinnum í bíl sínum eftir að hafa reynt að stinga Stockley og félaga hans af. Lögreglumennirnir ætluðu að handtaka hann í tengslum við meint fíkniefnaviðskipti. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að saksóknarar hefðu ekki sýnt fram á að Stockley hefði ekki skotið Smith í sjálfsvörn svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa.Protests erupt in St. Louis after ex-cop is acquitted of first-degree murder in 2011 shooting of Anthony Lamar Smith https://t.co/ScT9EehEay pic.twitter.com/qcQYyfcaZj— CNN (@CNN) September 16, 2017 U2 aflýsti tónleikum vegna ofbeldsins í gærTíu lögreglumenn særðust og 23 voru handteknir þegar til átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu í borginni í gærkvöldi, að því er kemur fram í frétt Reuters-fréttastofunnar. Mótmælin í dag hafa verið friðsamleg fram að þessu. Írska hljómsveitin U2 aflýsti engu að síður tónleikum sem hún ætlaði að halda í St. Louis í kvöld af ótta við að ekki væri hægt að tryggja öryggi tónleikagesta. Saksóknarar héldu því fram að á upptökum úr lögreglubílnum mætti heyra Stockley segja að hann ætlaði að drepa Smith. Verjendur sögðu hins vegar að Stockley hafi talið að Smith væri vopnaður og að skotvopn hafi fundist í bíl hans. Saksóknarar sökuðu lögreglumanninn aftur á móti um að hafa komið byssunni fyrir og vísuðu til þess að á henni fannst aðeins erfðaefni úr Stockley. Sjálfur segist Stockley ekki hafa gert neitt rangt. „Ég myrti ekki Anthony Lamar Smith. Ég kom byssu ekki fyrir,“ sagði Stockley við St. Louis Post-Dispatch.
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira