Þrettán mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn ellefu ára stúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. september 2017 11:30 Héraðsdómur Reykjaness var fjölskipaður í málinu. Ástríður Grímsdóttir, Bogi Hjálmtýsson og Gunnar Aðalsteinsson kváðu upp dóminn. vísir/gva
28 ára karlmaður hefur verið dæmdur í þrettán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness meðal annars fyrir að fara óboðinn inn á heimili í Hafnarfirði í maí og brjóta kynferðislega á ellefu ára stúlku. Dómur var kveðinn upp á mánudag en birtur í dag. Mál mannsins hefur þegar verið til nokkurar umfjöllunar í fjölmiðlum en maðurinn sat í gæsluvarðhaldi í tæpa þrjá mánuði, frá maí til júlí í fyrra. Það var aðfaranótt föstudagsins 5. maí sem maðurinn ruddist inn á heimili í Hafnarfirðinum og braut gegn stúlku, fæddri árið 2005. Hún var þá hjá föður sínum og stjúpmóður. Stóð maðurinn við rúm stúlkunnar þar sem hún lá, settist á rúmstokkinn, strauk bak og mjöðm hennar innanklæða áður en hann fór upp í rúm hennar og hélt áfram að strjúka henni. Stúlkan flúði undan manninum inn á salerni, elti hana og reyndi að opna salernisdyrnar. Stúlkan kom í veg fyrir að honum tækist það. Maðurinn neitaði að hafa snert stúlkuna innan klæða. Dómurinn mat framburð stúlkunnar trúverðugan. Þá var maðurinn var dæmdur fyrir brot gegn blygðunarsemi, með því að hafa snemma morguns, sama föstudag, farið upp að baðherbergisglugga hjá ókunngri konu þar sem hún stóð fáklædd og berbrjósta á heimili sínu. Neitaði maðurinn að hafa séð konuna fáklædda en dómurinn mat framburð konunnar trúverðugan. Var hann dæmdur fyrir að hafa stolið gin flösku á heimili stúlkunnar en sýknaður af fíkniefnabrot en tæpt gramm af marijúana fannst í poka við rúm stúlkunnar. Gegn neitun mannsins, og þar sem fingraför hans fundust ekki á pokanum, var hann sýknaður af þeim ákærulið. Þarf maðurinn að greiða stúlkunni 900 þúsund krónur í bætur og konunni 300 þúsund krónur eins og fram kemur í dómnum. Þeir dagar sem maðurinn var í gæsluvarðhaldi koma til frádráttar refsingu mannsins.
Tengdar fréttir Játar að hafa brotist inn Karlmaður sem sætir ákæru vegna gruns um að hafa brotist inn í íbúð í Hafnarfirði og áreitt tólf ára stúlku kynferðislega í maí síðastliðnum játaði innbrotið þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í mánuðinum. Hann neitaði hins vegar að hafa brotið á stúlkunni. 29. júlí 2017 06:00 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Játar að hafa brotist inn Karlmaður sem sætir ákæru vegna gruns um að hafa brotist inn í íbúð í Hafnarfirði og áreitt tólf ára stúlku kynferðislega í maí síðastliðnum játaði innbrotið þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í mánuðinum. Hann neitaði hins vegar að hafa brotið á stúlkunni. 29. júlí 2017 06:00