Lægðagangur í kortunum eftir helgi Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 6. október 2017 08:32 Það gengur í austan hvassviðri syðst á landinu í dag og von er á lægðagangi eftir helgi. Foto: Vísir/Vilhelm
Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands gengur í austan hvassviðri syðst á landinu í dag en 8-13 m/s annarsstaðar um landið sunnan- og vestanvert en breytileg átt, 3-8 m/s á Austurlandi og Austfjörðum. Rigning verður sunnanlands í dag en léttskýjað norðantil. Suðlægari vindur í nótt, 5-10 m/s en gengur í 10-18 við suður- og vesturströndina, hvassast verður á Snæfellsnesi. Á morgun á að vera skýjað og einnig dálítil rigning með köflum, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu 4 til 9 stig að deginum. Útlit er fyrir lægðagang eftir helgi, en þó ekki djúpar lægðir og því verður ekki mjög hvass vindur. Rigning eða súld á köflum í flestum landshlutum en þurrt og jafnvel bjart þess á milli. Áfram fremur milt í veðri.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Austan 5-13 m/s, en 13-18 allra syðst á landinu. Víða rigning, en léttskýjað og þurrt norðanlands. Þykknar upp fyrir norðan með lítilsháttar vætu og heldur hægari vindur syðst seint í kvöld. Sunnan 5-13 á morgun, en 13-18 á Snæfellsnesi. Rigning með köflum en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hiti 4 til 9 stig en við frostmark norðaustantil í nótt.Á laugardag: Sunnan 5-10 m/s, en 8-13 á vestantil. Súld eða dálítil rigning, en þurrt norðaustanlands. Hiti 6 til 12 stig.Á sunnudag: Sunnan 3-10 og lítilsháttar skúrir, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Austlægari og fer að rigna syðst á landinu um kvöldið. Hiti 5 til 10 stig.Á mánudag: Breytileg átt 5-13 og rigning um allt land. Hiti 3 til 8 stig. Hægviðri og þurrt að kalla á norðaustanverðu landinu undir kvöld.Á þriðjudag: Gengur í suðaustan 10-15 á Suður- og Vesturlandi og fer að rigna. Hægari vindur og bjart fyrir norðan og austan. Hiti 3 til 8 stig.Á miðvikudag: Austlæg átt og rigning með köflum sunnan- og austanlands, en yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag: Útlit fyrir austlæga átt og rigningu á Suðausturlandi en þurrt að kalla suðvestantil og léttskýjað norðanlands. Hiti 1 til 7 stig.
Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Sjá meira