Körfubolti

Ólafur: Hef engar áhyggjur af þessu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ólafur Ólafsson hefur engar áhyggjur þrátt fyrir tvö töp Grindvíkinga í upphafi tímabils.
Ólafur Ólafsson hefur engar áhyggjur þrátt fyrir tvö töp Grindvíkinga í upphafi tímabils. Vísir/Eyþór
Landsliðsmaðurinn Ólafur Ólafsson var ánægður með margt í leik Grindvíkinga þrátt fyrir tap gegn Tindastóli í kvöld.

„Við vorum betri en síðast gegn Keflavík. Við leggjum alltaf upp með að bæta okkar leik og mér fannst við gera það. Að stíga út í vörninni gerðum við ekki nógu vel, þeir fengu alltof mikið af auka tækifærum í sókninni og það varð okkur að falli í dag,“ sagði Ólafur í samtali við Vísi eftir leik.

Stóru menn Grindvíkinga voru í villuvandræðum í kvöld og miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson var kominn með þrjár villur strax eftir fimm mínútna leik og spilaði lítið þar til hann fékk fimmtu villuna í síðari hálfleik.

„Við missum mikið þegar Siggi eru í villuvandræðum, þetta er besti íslenski miðherjinn. Stundum eru þetta klaufalegar villur sem hægt er að sleppa við en hann er það mikilvægur að hann má ekki detta í villuvandræði. Það munar um hann í teignum gegn svona trölli eins og þeir eru með,“ en þar á Ólafur við Antonio Hester sem var frábær fyrir Stólana í kvöld.

Grindvíkingum var spáð góðu gengi í vetur en hafa tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjunum í Dominos-deildinni. Er komið eitthvað stress í Grindavík?

„Nei elskan mín góða, það er október. Ég hef engar áhyggjur af þessu. Við förum yfir þetta og skoðum málin,“ sagði Ólafur borubrattur að lokum.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Grindavík - Tindastóll 81-88 | Þrír sigrar í röð hjá Stólunum

Tindastólsmenn sóttu tvö stig í Grindavík þegar liðið vann sjö stiga sigur á heimamönnum, 88-81, í lokaumferð 4. umferðar Domino´s deildar karla. Stólarnir hafa þar með unnið þrjá leiki í röð en þetta var annað tap Grindavíkurliðsins í röð. Tindastólsliðið tryggði sér sigur með því að vinna lokaleikhlutann 26-17 en þar fór Antonio Hester á kostum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×