Handbolti

Rúnar rekinn frá Balingen

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar á hliðarlínunni hjá Balingen.
Rúnar á hliðarlínunni hjá Balingen. vísir/getty
Rúnar Sigtryggson er kominn á þjálfaramarkaðinn en hann var í dag rekinn frá þýska B-deildarliðinu Balingen.

Ástæðan er að sjálfsögðu slakur árangur liðsins sem hefur verið undir væntingum stjórnar félagsins. Liðið var í úrvalsdeild í fyrra en féll. Í tilkynningu félagsins kemur einnig fram að Rúnar hafi ætlað að hætta með liðið í lok leiktíðar.

Balingen er í sjötta sæti deildarinnar og alls ekki úr baráttunni um úrvalsdeildarsæti.

Rúnar hefur verið að þjálfa í Þýskalandi frá árinu 2012. Þá tók hann við liði EHV aue og stýrði því til ársins 2016 er hann fór til Balingen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×