Domino's Körfuboltakvöld: Ruðningur breytist í villu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 21. október 2017 21:30
Það var Suðurnesjaslagur í Domino's deild karla á fimmtudag þegar Keflavík og Grindavík mættust. Í leiknum var umdeild villa dæmd á Ólaf Ólafsson, og var hún að sjálfsögðu krafin til mergjar í Domino's Körfuboltakvöldi í gærkvöld. Ólafur var dæmdur brotlegur fyrir það að hoppa upp inn í teig og hindra Ágúst Orrason í að komast að körfunni. Teitur Örlygsson, tífaldur Íslandsmeistari í körfubolta, var sérstakur heiðursspekingur í gærkvöld og hann sagði að þar sem Ólafur hoppar beint upp þá væri þetta ekki villa. Kristinn Geir Friðriksson var ekki sammála honum og sagði að vegna þess að Ólafur stendur á hringboganum þegar hann stekkur þá sé þetta villa. „Ég er ekki sammála, og ég held að dómarar bakki mig upp,“ sagði Teitur. „Þú getur alveg séð varnarmenn í traffík inni í teig. Það er ekkert allur kontakt villa þó þú standir inni í þessum boga.“ „Ef þú ert inni í þessum hring, áttu þá alltaf að fara frá ef einhver keyrir að körfunni?“ spurði Teitur. „Áður en þessi bogi kemur þá hefði þetta verið ruðningur, þegar hann kemur breytist þetta þá bara í villu? Ég held ekki.“ „Jú, það er akkúrat það sem gerist,“ svaraði þá Kristinn. Þeir komust ekki að niðurstöðu í þessu máli, en umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Grindavík 93-88 | Keflavík vann Suðurnesjaslaginn Þetta var fyrsta tap Grindavíkur í vetur. Bæði lið hafa nú unnið tvo leiki og tapað einum. 19. október 2017 21:15 Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Grindavík 93-88 | Keflavík vann Suðurnesjaslaginn Þetta var fyrsta tap Grindavíkur í vetur. Bæði lið hafa nú unnið tvo leiki og tapað einum. 19. október 2017 21:15