Flúrið lifir og deyr með mér Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 9. nóvember 2017 13:30 Dagný segir nám í húðflúrun vera krefjandi og skemmtilegt. Vísir/Eyþór
Suðurnesjamærin Dagný Lind Draupnisdóttir er að læra húðflúrun. Hún segir húðflúr geta verið þokkafull og ögrandi í senn. Þau sýni sígildar og eilífar táknmyndir en elti líka tískustrauma.„Fyrsta húðflúrið mitt var minningartattú um pabba minn. Þegar ég fékk fréttirnar um að hann væri dáinn teiknaði ég kross og fann seinna hvernig hann varð mér þýðingarmikið tákn sem ég vildi fá flúrað á bakið,“ segir Dagný Lind Draupnisdóttir frá Sandgerði.Dagný hefur ekki lengur tölu á húðflúrum sínum en segir eitt tattú gjarnan kalla á annað, og svo annað og annað. Stór húðflúr og svokallaðar ermar njóti mikilla vinsælda hjá báðum kynjum.Vísir/EyþórSíðan hafa mörg húðflúr bæst við hjá Dagnýju sem hefur ekki lengur tölu á þeim. „Húðflúr eru oftar en ekki mjög persónuleg. Eftir fyrsta flúrið kemur oft annað, og svo annað, og annað. Djúp merking liggur að baki húðflúra hjá mörgum; það geta verið minningar eða nöfn foreldra og barna sem hverjum og einum er kærastur; jafnvel mynd af heimilishundinum. Aðrir fá sér flúr til að skreyta líkamann með fallegum myndum, táknum eða letri,“ segir Dagný og bætir við að æ fleiri velji sér stór húðflúr. „Munstur og myndir eru háðar tískustraumum. Nú er vinsælt að tattúvera heilu ermarnar á handleggi karla og kvenna, og víkingauppruninn togar í marga. Galdrastafurinn Ægishjálmur er vinsæll sem og rúnaletur. Þá er mikið um svarthvít portrett af mönnum og dýrum, og bæði kyn vilja fá flúraðan kross eða rós á hörund sitt. Breiddin er mikil og afar fjölbreyttur hópur fólks sem vill skreyta sig með flúri.“ Aldurstakmark fyrir húðflúr er 18 ár. „Margir koma þó til okkar sextán ára í von um tattú en við fylgjum reglum. Húðin er enn að vaxa á sextán ára unglingum og enn vantar upp á þroska til að taka ákvarðanir sem varða alla framtíð. Húðflúr situr á líkamanum um aldur og ævi.“Svarthvítar, raunverulegar myndir af dýrum og mönnum eru nú hæstmóðins í tattútískunni, sem og rósir, krossar og orð.Vísir/EyþórDraumur sem rættist Frá því Dagný var lítil hnáta hefur hún teiknað. Hún fór á listnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefur einnig stundað nám við Myndlistaskólann í Reykjavík. „Undir niðri blundaði í mér draumur um að verða húðflúrari. Hins vegar eru fáar stofur sem taka inn nema og hægara sagt en gert,“ segir Dagný sem fékk langþráðan draum sinn uppfylltan í mars þegar hún fékk inni sem lærlingur á Tattoo & Skarti í Hafnarfirði, þar sem húðflúrmeistarinn Svanur Guðrúnarson sér um þjálfun hennar og kennslu. „Námið er ótrúlega skemmtilegt og krefjandi. Maður fer hægt og rólega af stað, fylgist með meisturunum vinna og fer svo hægt og bítandi að æfa sig á vinum og vandamönnum, en alls tekur námið tvö ár. Ég hef meðal annars þurft að sækja námskeið í sótthreinsun og meðferðum sára en með einnota nálum hefur hætta á smiti og sýkingum minnkað til muna,“ segir Dagný og húðflúrun leikur í höndunum á henni. „Ég er þegar farin að flúra minni verk, letur og fíngerðar myndir, en bíð enn með stærri húðflúr. Ég er alltaf krotandi á blað og búandi til tattú, en á Tattoo & Skart erum við ekki með uppflettimöppur með fjöldaframleiddum myndum heldur mætum óskum og hugmyndum fólks með einstöku flúri sem það sér ekki á næsta manni.“Hér gefur að líta nokkur glæsileg húðflúr sem Dagný hefur teiknað og flúrað eftir að hún hóf nám í húðflúrun.MYND ÚR EINKASAFNIÖgrandi og þokkafull Dagný segist mun oftar upplifa aðdáun og jákvæðni gagnvart húðflúrum sínum. „Það dást líka margir að því að ég þori að skreyta mig þetta mikið því maður losnar ekki svo glatt við húðflúr. Því er mikilvægt að skoða vel hver húðflúrar mann og hvernig útkoman er. Maður þarf að treysta manneskjunni sem flúrar mann því það er auðvelt að gera mistök ef ekki er farið af stað með vandvirkni að vopni.“ Oft kemur fyrir að ókunnugt fólk stoppar Dagnýju til að forvitnast um flúrin og skoða handleggi hennar. „Heimur tattúlistar er gríðarstór og merkilegur. Húðflúr geta verið þokkafull og ögrandi, en mér finnst það fara eftir hverju og einu flúri, og þeim skilaboðum eða yfirlýsingu í þeim felst. Persónulega lít ég á mín flúr sem list. List sem lifir og deyr með mér.“
Húðflúr Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Sjá meira