Játar manndráp af gáleysi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. nóvember 2017 11:15 Slysið varð á Öxnadalsheiði þann 24. júní í fyrra. Myndin er úr Öxnadal en tengist fréttinni að öðru leyti ekki. Vísir/Vilhelm
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur játað að hafa með gáleysi orðið erlendum karlmanni á sjötugsaldri að bana á Öxnadalsheiði í júní í fyrra. Maðurinn ók ónýtum bíl sínum á ógnarhraða undir áhrifum lyfja og varð valdur að þriggja bíla árekstri þar sem einn týndi lífi og annar slasaðist. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri á föstudaginn og játaði maðurinn brot sitt. Áreksturinn varð með þeim hætti að maðurinn ók aftan á bíl sem ekið var í sömu átt með þeim afleiðingum að fremri bíllinn kastaðist framan á smárútu sem ekið var í gagnstæða átt. Ökumaður bifreiðarinnar, erlendur karlmaður á sjötugsaldri, lést nær samstundis. Kona á sjötugsaldri, farþegi í smárútunni, hlaut afrifubrot á nærhluta nærkjúku þumals. Maðurinn virðist hafa verið á allt að 162 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Maðurinn var á ökutæki sem ekki var í notkunarhæfu ástandi vegna ástands hemla í framhjóli, þunnra hemlaklossa í afturhjólum, ryðmyndunar í helmadisk að aftan, ónýts höggdeyfis og vanstilltra lega. Þá var hann án lögboðinna ökuljósa. Í blóðsýni úr ákærða mældust deyfandi lyf. Annars vegar 10 ng/ml af alprazólam og 0,9 µg/ml af oxazepam.
Tengdar fréttir Banaslysið á Öxnadalsheiði: Ók ónýtum bíl á ofsahraða undir áhrifum lyfja Karlmaður á fimmtugsaldri sætir ákæru fyrir manndráp af gáleysi. 2. nóvember 2017 14:30 Banaslys á Öxnadalsheiði Þriggja bíla árekstur. Einn er alvarlega slasaður. 24. júní 2016 12:43 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Sjá meira
Banaslysið á Öxnadalsheiði: Ók ónýtum bíl á ofsahraða undir áhrifum lyfja Karlmaður á fimmtugsaldri sætir ákæru fyrir manndráp af gáleysi. 2. nóvember 2017 14:30