Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Samúel Karl Ólason skrifar 9. október 2026 11:28 Mikhail Zvinchuk er stofnandi einnar stærstu og áhrifamestu herbloggarasíðu Rússlands. RuTube Mikhail Zvinchuk, einn helsti herbloggari Rússlands og stofnandi áhrifamikils miðils sem kallast Rybar, var handtekinn í Svartfjallalandi í morgun. Forsætisráðherra landsins segir hann hafa verið handtekinn eftir viðvaranir um tilraunir til að grafa undan stöðugleika í Svartfjallalandi.
Auk Zvinchuk var eiginkona hans handtekin og þrír aðrir, samkvæmt miðlinum Vijesti, sem er frá Svartfjallalandi. Þau voru handtekin í bænum Risan og var handtakan framkvæmd af lögregluþjónum og starfsmönnum öryggislögreglu Svartfjallalands. Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir að Rússar séu að leita upplýsinga um málið. Tryggja öryggi Svartfjallalands Rybar er svokölluð herbloggarasíða sem nýtur mikilla vinsælda í Rússlandi og víðar um heim. Í yfirlýsingu á Telegramsíðu Rybar segir að þau hafi verið löglega í Svartfjallalandi og hafi ætlað sér að taka upp myndefni í klaustri í landinu. Milojko Spajic, forsætisráðherra Svartfjallalands, birti færslu á X um málið í morgun en þar staðfesti hann að Zvinchuk hefði verið handtekinn. Það hafi verið gert í kjölfar viðvarana um fjölþáttaógnir gegn Svartfjallalandi vegna viðleitni yfirvalda þar til að ganga í Evrópusambandið. Ráðherrann sagðist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu en sagði að starfsmenn öryggisstofnana væru að vinna sína vinnu og að verið væri að tryggja hagsmuni Svartfjallalands. Áður en hann var handtekinn tók Zvinchuk upp myndband í Svartfjallalandi þar sem hann staðhæfði að verið væri að brjóta á réttindum Rússa þar í landi, eða flestum þeirra. Einhvern veginn hefðu hann og hans fólk komist inn í landið. Montenegro's PM Milojko Spajić confirmed the detention of Russian propagandist Zvinchuk, aka Rybar, saying "institutions are doing their job, Montenegro is protecting its interests, and no one will be able to threaten our European future." Police found drones and other digital equipment on him and his wife, calling it a national security threat. Montenegro has an extradition treaty with the US, where a $10 million reward is offered for Zvinchuk. Before his detention, Rybar boasted in his last post that a "f**king idiot" border guard failed to check him against the database. Before his detention, Rybar recorded a video saying Russians in Montenegro are being "terrorized," though not all of them, since he had "somehow gotten in."— WarTranslated (@wartranslated) October 9, 2026 Rússneski útlagamiðillinn Meduza segir frá því að áður en hann var handtekinn hafi Zvinchuk stært sig af því á Instagram að hafa komist inn í Svartfjallaland, þrátt fyrir að hann hafi verið beittur refsiaðgerðum af Evrópusambandinu og Bretlandi. „Þú getur alltaf rambað á landamæravörð sem er helvítis fífl og tæmir vasa þína en gleymir að skoða gagnagrunninn sinn.“ Var á árum áður fjármagnaður af Prígósjín Rússneskir herbloggarar hafa lengi þjónað eins og nokkurs konar klappstýrur og málpípur fyrir rússneska herinn, þó þeir hafi margir gagnrýnt herinn þegar tilefni hefur verið til. Yfirvöld í Rússlandi hafa varið töluverðu púðri í að koma böndum á herbloggara á undanförnum árum og þá sérstaklega eftir uppreisn málaliða Wagner og auðjöfursins Jevgení Prígósjín. Sjá einnig: Hægri hönd Pútíns skipulagði dauða Prígósjíns Rybar var á árum áður fjármagnað af auðjöfrinum og fjallaði mikið um málaliðahópinn Wagner. Eftir að hann dó hefur miðillinn fengið fjármagn frá ríkisfyrirtækinu Rostec en Rybar er notaður til að dreifa áróðri yfirvalda í Rússlandi og fjalla um hernað Rússa á jákvæðan hátt. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa heitið tíu milljónum dala fyrir upplýsingar um Zvinchuk og aðra starfsmenn Rybar vegna meintra afskipta þeirra af forsetakosningum í Bandaríkjunum. Áður en hann stofnaði Rybar var Zvinchuk talsmaður hjá varnarmálaráðuneyti Rússlands. Stirð samskipti ríkjanna Eins og fram kemur í frétt Reuters hafa samskipti Svartfjallalands og Rússlands lengi verið slæm. Árið 2016 sökuðu yfirvöld þar Rússa um að reyna að styðja serbneska þjóðernissinna til að fremja valdarán. Ári síðar gekk Svartfjallaland svo í Atlantshafsbandalagið. Eftir innrás Rússa í Úkraínu 2022 tók Svartfjallaland þátt í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Rússneskir ríkismiðlar hafa verið bannaðir þar og rússneskir erindrekar sendir úr landi fyrir njósnir. Í kjölfarið hafa yfirvöld í Rússlandi skilgreint Svartfjallaland sem óvinveitt ríki.
Rússland Svartfjallaland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Bandaríkin Evrópusambandið Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira