Sautján féllu í sjálfsmorðssprengjuárás í Sómalíu Kjartan Kjartansson skrifar 14. desember 2017 10:11 Sprengjuárásir al-Shabab-hryðjuverkasamtakanna hafa verið tíðar í Mógadisjú. Myndin er frá eftirleik bílsprengju þar í október. Vísir/AFP
Íslamskur öfgamaður, dulbúinn sem lögreglumaður, myrti að minnsta kosti sautján manns og særði tuttugu aðra þegar hann sprengdi sjálfan sig í loft upp í lögregluskóla í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu í morgun. Lögreglumennirnir voru við æfingar fyrir hátíð til heiðurs lögreglunni sem átti að halda 20. desember þegar árásarmaðurinn lét til skarar skríða, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Honum tókst að komast inn án þess að neinn tæki eftir og slóst í hóp lögreglumannanna sem voru að æfa skrúðgöngu. Mohamed Hussein, varðstjóri hjá lögreglunni í Mógadisjú, segir að árásarmaðurinn hafi sprengt sprengjuna sem hann var með innanklæða þegar nærvera hans var farin að vekja grunsemdir. Ljóst sé að árásarmaðurinn hafi ætlað sér að valda eins miklum mannskaða og hægt væri. Hryðjuverkasamtökin al-Shabab hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðinu. Þau hafa staðið fyrir fjölda sprengutilræða í Mógadisjú, þar á meðal meiriháttar sprengjuárás sem varð 512 manns að bana í október.
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent „Svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi“ Innlent Dagný Ósk látin Innlent Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Innlent Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Fleiri fréttir Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Sjá meira