Mýrin ein af 50 bestu glæpasögum síðustu 50 ára að mati gagnrýnanda Times Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. desember 2017 11:30 Arnaldur Indriðason. Vísir/Andri marínó
Gagnrýnandi breska dagblaðsins Times hefur valið Mýrina eftir Arnald Indriðason eina af 50 bestu glæpasögum síðustu 50 ára. Í umsögn gagnrýnandans um Mýrina er söguþráður bókarinnar rakinn í örstuttu máli. Söguhetjan, rannsóknarlögreglumaðurinn Erlendur, er sagður „drungalegur“ og hið margfræga fámenni á Íslandi er einnig tekið til umfjöllunar. „Á Íslandi, með sína 330 þúsund íbúa, eru líklegast fleiri góðir glæpasagnahöfunda en í nokkru öðru landi, miðað við höfðatölu,“ skrifar gagnrýnandinn og bendir enn fremur á að tiltölulega stutt sé síðan byrjað var að þýða íslenskar bókmenntir á ensku. Á lista Times eru, auk Arnaldar, heimsþekktir glæpasagnahöfundar. Þar má nefna rithöfunda á borð við Gillian Flynn, sem skrifaði bókina Gone Girl, James Ellroy, höfund LA Confidential og hinn norska Jo Nesbø. Lista Times má lesa í heild sinni á vef blaðsins en Mýrin, sem á ensku ber titilinn Jar City, er í undirflokki helguðum norrænum glæpasögum. Skáldsagan var fyrst gefin út árið 2000 og sex árum síðar kom út samnefnd kvikmynd í leikstjórn Baltasar Kormáks.
Bókmenntir Tengdar fréttir Gamlir vendir sópa Sólrúnu Diego niður lista Arnaldur og Yrsa halda fast í toppsætin. 13. desember 2017 10:06 Jo Nesbø í ítarlegu viðtali við Vísi: Krimminn á skilið að illa sé um hann talað Jo Nesbø er orðinn sannkallaður Íslandsvinur og segir landið algerlega sér á parti. 14. desember 2017 11:00 Arnaldur þrífur toppsætið af Sólrúnu Diego Glænýir bóksölulistar. Spennan magnast. 6. desember 2017 11:10 Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira
Gamlir vendir sópa Sólrúnu Diego niður lista Arnaldur og Yrsa halda fast í toppsætin. 13. desember 2017 10:06
Jo Nesbø í ítarlegu viðtali við Vísi: Krimminn á skilið að illa sé um hann talað Jo Nesbø er orðinn sannkallaður Íslandsvinur og segir landið algerlega sér á parti. 14. desember 2017 11:00
Arnaldur þrífur toppsætið af Sólrúnu Diego Glænýir bóksölulistar. Spennan magnast. 6. desember 2017 11:10