Dómnefndin kveðst ekki lúta boðvaldi ráðherra Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. janúar 2018 20:52 Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, er settur dómsmálaráðherra í málinu. vísir/ernir
Dómsmálaráðuneytið hefur birt svarbréf dómnefndar um hæfni umsækjenda um átta embætti héraðsdómara á vef sínum. Í bréfinu kemur meðal annars fram að nefndin lúti ekki boðvaldi ráðherra heldur sé sjálfstæð stjórnsýslunefnd. Er vísað annars vegar í lög um dómstóla og hins vegar í nýgenginn dóm Hæstaréttar þar sem rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, hefði brotið lög við skipun dómara í Landsrétt. Voru tveimur umsækjendum, þeim Ástráði Haraldssyni og Jóhannesi Rúnari Jóhannessyni, dæmdar miskabætur vegna þess. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, er settur dómsmálaráðherra við skipun héraðsdómara nú þar sem Ástráður er einn umsækjenda. Í liðinni viku sendi hann dómefndinni bréf þar sem hann óskaði eftir eftir nánari upplýsingum um matið, meðal annars hvort dómnefndin hefði raðað umsækjendum með hlutlægum hætti upp í stigatöflu, hvort sett hafi verið töluleg viðmið um mat á því hvenig umsækjendur uppfylltu einstaka kröfu, hvert hefði verið innbyrðis vægi sjónarmiða sem dómnefndin lagði mat á og hvert hefði verið innbyrðis vægi mats á umsóknargögnum.Grófflokkun í excel-skjali sem verður ekki afhent Í svarbréfi nefndarinnar sem barst ráðuneytinu í dag er vísað til þess úr fyrrnefndum dómi Hæstaréttar að samkvæmt lögskýringargögnum laga nr. 92/2989 um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds, þar sem reglur um dómefnd til að meta hæfni umsækjenda var fyrst sett í lög, hafði lagasetningin það að markmiði að styrkja sjálfstæði dómstóla. Þá átti hún einnig að auka traust almennings á því að dómarar væru óháðir handhöfum framkvæmdarvaldsins. Sömu reglur og voru í lögum nr. 92/1989 voru efnislega teknar upp í lögum um dómstóla, nr.15/1998 að því er fram kemur í svarbréfinu með vísan til fyrrgreinds dóms Hæstaréttar. Í þeim lögum var þeirri rannsóknarskyldu sem mælt var fyrir um í stjórnsýslulögum við skipun héraðsdómara létt að miklu leyti af ráðherra. Rannsóknarskyldan fór þess í stað í hendur „sjálfstæðrar og óháðrar dómnefndar sem skipuð var með tilliti til þess að tryggt yrði að sérþekking væri þar fyrir hendi um mat á hæfni umsækjenda um dómaraembætti.“ Af þessu leiði að dómnefndin lúti ekki boðvaldi ráðherra heldur sé sjálfstæð stjórnsýslunefnd. Varðandi þá athugasemd setts ráðherra að umsækjendum hafi ekki verið raðað með hlutlægum hætti upp í stigatöflu, líkt og gert var þegar mati á hæfni umsækjenda um dómarastöður við Landsrétt var skilað, segir í svarbréfinu að dómnefndin hafi nú nýtt excel-skjal til að grófflokka umsækjendur í upphafi. Það sé vinnuskjal og verði ekki afhent. „Dómnefnd er ekki kunnugt um, að t.d. excel skjöl/töflur hafi verið notuð í störfum nefndarinnar fyrr en í maí 2017, þótt nefndin hafi notað „skorblöð“ til uppröðunar í fyrri störfum og einnig nú. [...] Um þetta atriði er annars rétt að nefna, að vinnubrögð nefndarinnar voru í samræmi við störfin frá setningu reglna nr. 620/2010, með því eina fráviki, sem nefnt hefur verið um excel skjal djómnefndar í maí 2017,“ segir í svarbréfinu.Nefndinni ekki ljóst hvað ráðherra eigi við Bréf setts dómsmálaráðherra til dómnefndarinnar var í tíu töluliðum og er svarbréf nefndarinnar einnig í tíu töluliðum. Í sjöunda tölulið er þannig farið yfir sjöundu athugasemd ráðherrans þar sem hann sagði: „Í sjöunda lagi er undir lokin á umsögninni tiltekið hverja dómnefndin metur hæfasta, án þess að það sé rökstutt sérstaklega á grundvelli heildarmats hvers vegna þessir umsækjendur en ekki aðrir eru metnir hæfastir.“ Dómnefndin segir í svarbréfinu að hér sé henni ekki ljóst hvað ráðherra eigi við. Þannig hafi í köflunum sem á undan fóru, áður en komið væri að lokum umsagnarinnar, komið fram hvaða þættir það væru sem hefðu verið metnir og hvernig umsækjendur hefðu komið út úr þeim. Megináherslan hefði verið á þrjá stóra þætti, það er dómarareynslu, reynslu af lögmannsstörfum og stjórnsýslustörfum. Væru þessir þættir metnir jafnt auk þess sem fram færi sundurgreint mat á menntun, fræðistörfum, kennslu og útgáfu. „Í þeim samanburði sem fer fram í hverjum þætti felst matið, sem er síðan dregið saman í heildarniðurstöðu,“ segir í svarbréfinu.Störf sem vega mjög miklu minna en störf við héraðsdómstóla Þá hefur nokkuð verið fjallað um þá athugasemd ráðherrans sem snýr að í þættinum um reynslu af dómarastörfum hafi umsækjanda verið raðað efst sem hefði átta ára reynslu sem settur dómari en umsækjanda sem hefði verið skipaður héraðsdómari í um tuttugu ár verið raðað skör lægra. Um þetta segir í svarbréfi nefndarinnar: „Fyrst ber að nefna, að sá umsækjandi sem ráðherra telur hafa verið skipaðan héraðsdómara í um tuttugu ár, var fyrstu þrjú árin fulltrúi fyrir réttarfarsbreytingar 1. júlí 1992 og taldi nefndin störf við sýslumannsembætti/bæjarafógetaembætti vega mjög miklu minna en störf við héraðsdómstóla eftir þann tíma. Viðkomandi umsækjandi hefur sinnt dómarastörfum í um 16 ár, en ekki 20, að teknu tilliti til leyfa. Enn er þess að gæta að viðkomandi umsækjandi hefur ekki sinnt dómströfum frá lokum ágúst 2008. Umsækjandinn sem raðað er ofar hefur sinnt dómstörfum nánast alveg samfellt síðustu átta ár og áður sem aðstoðarmaður dómara nær sex ár.“Svarbréf dómefndarinnar má sjá í heild sinni hér og bréf setts dómsmálaráðherra til hennar hér.
Tengdar fréttir Hæstaréttarlögmaður gáttaður á vinnubrögðum dómnefndar Athygli vakti að einn umsækjenda, hæstaréttarlögmaðurinn Jónas Jóhannsson, var ekki talinn meðal þeirra átta hæfustu – þrátt fyrir að hafa að baki um 20 ára reynslu sem héraðsdómari víða um land. 30. desember 2017 21:00 Ráðherra mun birta svarbréf dómnefndar Dómnefnd um hæfni umsækjenda um átta stöður héraðsdómara hefur óskað eftir því við Guðlaug Þór Þórðarson, settan dómsmálaráðherra, að svarbréf nefndarinnar við bréfi ráðherra verði birt á vef ráðuneytisins. 3. janúar 2018 18:45 Í verulegum erfiðleikum með að ganga úr skugga um að mat nefndarinnar sé forsvaranlegt Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar hæfnisnefndinni nokkuð harðort bréf þar sem hann efast um það hvort mat nefndarinnar sé forsvaranlegt. 29. desember 2017 21:03 Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Innlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Fimm bíla árekstur á Sæbraut Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Sjá meira
Hæstaréttarlögmaður gáttaður á vinnubrögðum dómnefndar Athygli vakti að einn umsækjenda, hæstaréttarlögmaðurinn Jónas Jóhannsson, var ekki talinn meðal þeirra átta hæfustu – þrátt fyrir að hafa að baki um 20 ára reynslu sem héraðsdómari víða um land. 30. desember 2017 21:00
Ráðherra mun birta svarbréf dómnefndar Dómnefnd um hæfni umsækjenda um átta stöður héraðsdómara hefur óskað eftir því við Guðlaug Þór Þórðarson, settan dómsmálaráðherra, að svarbréf nefndarinnar við bréfi ráðherra verði birt á vef ráðuneytisins. 3. janúar 2018 18:45
Í verulegum erfiðleikum með að ganga úr skugga um að mat nefndarinnar sé forsvaranlegt Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar hæfnisnefndinni nokkuð harðort bréf þar sem hann efast um það hvort mat nefndarinnar sé forsvaranlegt. 29. desember 2017 21:03