Bardagakappar og bókaormar leiða sama hesta sína Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. janúar 2018 07:35 Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen aðst.framkv.stjóri Mjölnis, Haraldur Dean Nelson framkvæmdastjóri Mjölnis, Hafrún Kristjánsdóttir sviðstjóri íþróttafræðisviðs HR og Davíð Már Sigurðsson meistaranemi í íþróttavísindum og þjálfun við HR við undirritun samningsins.
Mjölnir og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning sem snýr að rannsóknum á líkamlegri getu, hreyfifærni og sálfræðilegum þáttum hjá keppnisfólki í félaginu. Mjölnir er í tilkynningu sagt vera fyrsta íþróttafélag landsins til að gera samning af þessu tagi við háskólann en félagið mun meðal annars veita meistaranema við HR í íþróttavísindum og þjálfun styrk meðan á rannsókninni stendur. Haft er eftir Haraldi Dean Nelson, framkvæmdastjóra Mjölnis, í tilkynningunni að félagið sé mjög stolt af samstarfinu við Háskólann í Reykjavík og vonast hann til að þetta verði aðeins fyrstu skrefin að mörgum í samstarfi Mjölnis við háskólann. „Við stóðum m.a. nýlega fyrir afar vel sóttum almennum fræðslufundi um heilahristing í íþróttum, viðbrögð og mögulegar afleiðingar og vorum fyrsta íþróttafélagið til að gera slíkt. Við höfum einnig fengið sérfræðinga til að fjalla um lyfjamál og fleira við okkar afreksfólk. Markmiðið er að standa reglulega að fræðslufundum í samstarfi við fagaðila um hin ýmsu málefni sem snúa að íþróttum og þjálfun og þetta samstarf styrkir okkur í Mjölni í því að taka eins faglega á málum og okkur er unnt,“ segir Haraldur. Jafnframt er rætt í tilkynningu vi Hafrúnu Kristjánsdóttur, sviðstjóra íþróttafræðisviðs Háskólans í Reykjavík, sem tekur undir orða Haraldar. „Við í HR erum mjög ánægð með þennan samning við nágranna okkar í Mjölni. Við hlökkum til að hjálpa keppnisliði Mjölnis að ná enn lengra með því tengja íþróttavísindi á enn öflugri hátt við þjálfun keppnisliðsins en áður hefur verið gert. Þessi samningur lýsir vel metnaði Mjölnis að standa faglega að allri þjálfun afreksmanna," segir Hafrún.
Mest lesið Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira