Volvo þarf að auka við framleiðslu Polestar 1 Finnur Thorlacius skrifar 8. febrúar 2018 15:23 Polestar 1 er með skandínavískar og naumhyggjulegar línur en aflrásin verður seint tengd við naumhyggju.
Kraftabíladeild Volvo heitir Polestar og er tiltölulega nýstofnuð sem sjálfstæð eining, en margir bílaáhugamenn þekkja fyrri Volvo Polestar bíla sem margir hverjir hafa verið gríðarlegir orkuboltar. Fyrsti bíllinn sem eingöngu er ætlað að bera Polestar merkið mun bera hið einfalda heiti Polestar 1. Þar fer mjög öflugur tengiltvinnbíll sem mun kosta sitt. Meiningin hjá Polestar var að framleiða fyrst 500 eintök af hálfgerðri viðhafnarútgáfu hans með 600 hestafla aflrás og að miklu leiti smíðaður úr koltrefjum. Svo margir hafa þó skráð sig fyrir þessum tilvonandi bíl, eða meira en 5.000 áhugasamir kaupendur, að Volvo er að hugsa um að auka við hina fyrirhuguðu takmörkuðu framleiðslu. Polestar verður framleiddur í nýrri verksmiðju Polerstar í Chengdu í Kína og á hún að verða tilbúin um mitt þetta ár. Polestar verður með stórar rafhlöður sem duga til 150 km aksturs án aðstoðar frá brunavél hans. Sú drægni gerir hann að langdrægasta tengiltvinnbíl sem sögur fara af, enn sem komið er. Volvo mun byrja að taka við raunverulegum pöntunum í Polestar 1 bílinn stuttu eftir bílasýninguna í Genf í mars, en þar verður hann sýndur almenningi fyrsta sinni. Þá mun væntanlega koma í ljós hvort Polestar þurfi ekki hressilega að bæta við í framleiðslu þessa magnaða bíls.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent