Mitsubishi Outlander söluhæstur í janúar Finnur Thorlacius skrifar 2. febrúar 2018 14:11 Mitsubishi Outlander mokast hreinlega út.
Ekkert bílaumboð á Íslandi seldi fleiri bíla til einstaklinga í janúar 2018 en Hekla sem trónir nú á toppnum með 239 bíla selda á þessum tíma. Þannig er ríflega fjórðungur allra seldra bíla á þessum markaði frá Heklu. Ein af ástæðunum fyrir þessum frábæra árangri eru gríðarlegar vinsældir tengiltvinnbílsins Mitsubishi Outlander PHEV og seldust 118 eintök af bílnum til einstaklinga og fyrirtækja í fyrsta mánuði ársins og var markaðshlutdeild hans um 10% á þessum tíma. Ekkert lát er á vinsældum þessa bíls sem sló öll met á síðasta ári og byrjar nýtt ár með látum og er vinsælasti og mest seldi bíllinn á Íslandi þessa mánuðina. Markaðshlutdeild Outlander PHEV í flokki tengiltvinnbíla er 48% og er leitun að öðrum eins yfirburðum í einum flokki. Vinsældirnar eru hins vegar ekki bundnar við Ísland, því Mitsubishi Outlander PHEV hefur nú selst í yfir 100.000 eintökum í Evrópu frá því að hann var kynntur til leiks árið 2013. Bíllinn hefur verið á toppnum í sínum flokki í Evrópu síðustu þrjú ár, þrátt fyrir síaukna sókn annarra tegunda inn á sama markað. Þá hafa vistvænir bílar frá Volkswagen einnig slegið í gegn en í janúarmánuði jókst salan um 24% á milli ára. 70% nýskráðra Volkswagen bíla voru vistvænir og trónir e-Golf á toppnum. Golf og Passat eru jafnframt mest seldu bílarnir á Íslandi í sínum stærðarflokkum. HEKLA styrkir enn stöðu sína í byrjun árs sem það bílaumboð sem hefur mest úrval, flestar tegundir og selur flesta vistvænu bílana. Í janúar var Hekla með 69,12% markaðshlutdeild á vistvæna markaðnum á Íslandi, sem er 7 prósentustiga aukning frá síðasta ári en það bílaumboð sem næst kemur hefur 14% hlutdeild. Fimm af sex vinsælustu raf- og tengiltvinnbílunum koma frá Heklu, en það eru Mitsubishi Outlander PHEV, Volkswagen e-Golf, Audi A3 e-tron, Volkswagen Passat GTE og Audi Q7 e-tron.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent