Skoðun

Ávinningur af styttingu vinnuvikunnar

Ásmundur Einar Daðason skrifar
Jákvæð reynsla vinnustaða sem gert hafa tilraun með að stytta vinnuvikuna hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarið. Velferðarráðuneytið hefur stýrt sambærilegu verkefni af hálfu hins opinbera. Efnt var til þess á grundvelli viljayfirlýsingar stjórnvalda í tengslum við gerð kjarasamninga ríkisins og aðildarfélaga BSRB haustið 2015. Stofnanirnar sem taka þátt í þessu verkefni eru Ríkisskattstjóri, Útlendingastofnun, Þjóðskrá og Lögreglustjórinn á Vestfjörðum.

Tilraunin er til eins árs og hófst síðastliðið vor með fækkun vinnustunda starfsfólks á þessum vinnustöðum úr 40 stundum í 36, án launaskerðingar. Markmiðið er að skoða hvort þetta leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og viðkomandi vinnustaða. Fyrir liggja erlendar rannsóknir, m.a. hjá nágrannaþjóðum, þar sem niðurstöður hafa annars vegar sýnt skaðleg áhrif af löngum vinnutíma og hins vegar að stytting vinnuvikunnar hafi jákvæð áhrif á líðan starfsfólksins og auki framleiðni.

Í verkefninu eru könnuð áhrif styttri vinnutíma á gæði og hagkvæmni þjónustu vinnustaðanna og áhrifin á líðan starfsfólksins og starfsanda. Til samanburðar eru sambærilegar mælingar gerðar á fjórum öðrum vinnustöðum með svipaða starfsemi þar sem vinnuvikan er 40 stundir.

Niðurstöður tveggja kannana og rýnihópa benda til mikillar ánægju með tilraunaverkefnið hjá þátttakendunum. Starfsánægja hafi aukist, líðan á vinnustað batnað, lífsgæði aukist og auðveldara sé fyrir starfsfólkið að samræma vinnu og einkalíf en á vinnustöðunum sem skoðaðir voru til samanburðar og í samanburði við mælingar sem gerðar höfðu verið á stofnununum fjórum áður en verkefnið hófst.

Samkvæmt áætlun lýkur tilraunaverkefninu vorið 2018 og ættu lokaniðurstöður að liggja fyrir næsta haust. Miðað við þær upplýsingar sem þegar liggja fyrir hefur stytting vinnuvikunnar jákvæð áhrif á starfsfólk og vinnustaði. Styttingin veitir fjölskyldum svigrúm til þess að eiga fleiri gæðastundir og slíkt hlýtur að hafa góð áhrif á þjóðfélagið í heild.

Þótt við getum ekki alhæft út frá þessari tilraun virðast þessar vísbendingarnar nógu skýrar til þess að við verðum að halda áfram og skoða möguleikana á styttingu vinnuvikunnar af mikilli alvöru.

Höfundur er félags- og jafnréttismálaráðherra






Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×