Pirraður Wenger: Enginn að spyrja hvort þín staða verði endurskoðuð í lok tímabilsins Henry Birgir Gunnarsson skrifar 28. febrúar 2018 10:45 Wenger er ekkert sérstaklega hress. vísir/getty
Það er farið að síga á seinni hluta tímabilsins og venju samkvæmt er mikið rætt um framtíð Arsene Wenger hjá Arsenal. Stjóranum til lítillar gleði. Enn eitt árið vill stór hluti stuðningsmanna Arsenal losna við Wenger og tapið gegn Man. City í úrslitum deildabikarsins setti þá umræðu á fullt á ný enda gat Arsenal ekkert í leiknum. Wenger hefur stýrt Arsenal frá árinu 1996 og skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í lok síðasta tímabils. Hann segist ekki vita af því að til standi að endurskoða þann samning. „Staðan hjá okkur er þannig að við erum bara að hugsa um næsta leik. Ég er ekki að spyrja þig hvort þinn miðill ætli að endurskoða þína stöðu undir lok tímabilsins,“ sagði pirraður Wenger við blaðamann sem hafði gerst svo djarfur að spyrja Wenger út í framtíðina. „Mitt hlutverk er að gera mitt besta í starfi og svo er það starf annarra hvort ég sé að standa mig nógu vel.“ Wenger var svo spurður hvort hann gæti staðfest að hann yrði í brúnni næsta vetur? Það var ekki til að hressa Frakkann. „Myndirðu hætta að sofa ef þú færð ekki að vita það? Nei. Það sem er áhugavert í fótbolta er frammistaða liðanna og það munt þú sjá á fimmtudag. Ég trúi því varla að ég sé alltaf að svara sömu spurningunum. Ég hef verið hérna í 21 ár og hafnað öllu öðru til þess að standa við skuldbindingar mínar hérna.“
Enski boltinn Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira