Icelandair fellir niður flugferðir Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2018 22:34 Veður hefur raskað flugi um Keflavíkurflugvöll. Áfram er spáð stormi á morgun. Vísir/Anton Brink
Tíu flugferðir Icelandair sem áætlaðar voru síðdegis og í kvöld hafa verið felld niður, þar á meðal til London og Kaupmannahafnar. Þá var nokkrum ferðum seinkað vegna veðurs. Á vefsíðu Icelandair sem var uppfærð kl. 23:10 kemur fram að ferðir til og frá London, Denver, New York, Osló og Kaupmannahöfn hafi verið felldar niður. Vísar flugfélagið til seinkunar sem hafi orðið á fjölmörgum ferðum í leiðarkerfi þess til og frá Íslandi í dag. Ljóst sé að þetta muni einnig hafa áhrif á flug út úr Keflavík mánudagsmorguninn 26. febrúar. Þá hefur ferðum frá N-Ameríku, Evrópu og Bretlandi til Keflavíkur verið seinkað í kvöld. Farþegar á ferðalagi frá N-Ameríku til Evrópu eru beðnir um að fylgjast með tölvupósthólfum sínum. Mikill vindur setti strik í reikninginn á Keflavíkurflugvelli í dag. Farþegar komust ekki út úr vélum sem lentu á flugvellinum vegna þess að landgöngubrýr voru teknar úr notkun af öryggisástæðum. Á vefsíðu Wow air kemur fram að flugferðum frá Keflavík síðdegis á morgun seinki. Veðurstofan spáir suðaustan hvassviðri eða stormi á suðvesturhorninu á morgun.Fréttin hefur verið uppfærð.
Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Fleiri fréttir Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Sjá meira