Innlent

Fjöldi hand­tekinn í að­gerðum lög­reglu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögreglan handtók fjölda manns í morgun.
Lögreglan handtók fjölda manns í morgun. Vísir/Viktor Freyr

Fjöldi manns var handtekinn í samhæfðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti.

Þetta fullyrðir Ríkisútvarpið. Segir í umfjöllun þess að hið minnsta tíu manns hafi verið handteknir.

Þeirra á meðal séu nokkrir þekktir brotamenn á meðal hinna handteknu. Þar á meðal sé Atli Freyr Fjölnisson sem þegar situr í varðhaldi á Litla-Hrauni vegna aðildar að smygli á kókaíni með súrálsskipi í sumar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×