Nýr formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörinn Kjartan Kjartansson skrifar 19. mars 2018 21:02 Auk Elísabetar (2.f.h.) voru þrjú kjörin fulltrúar á Réttindaskrifstofu SHÍ í kvöld. Sonja Sigríður Jónsdóttir, Pétur Geir Steinsson og Elísa Björg Grímsdóttir. SHÍ
Elísabet Brynjarsdóttir var kjörin formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ) með öllum greiddum atkvæðum í kvöld. Kosningin fór fram á skiptafundi ráðsins. Áherslumál hennar verða húsnæðismál stúdenta, nýtt lánasjóðsfrumvarp og bætt geðheilbrigðisþjónusta við nemendu háskólans. Í tilkynningu frá SHÍ kemur fram að Elísabet hafi útskrifast sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands í júní og hún hafi starfað sem teymisstjóri hjá heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins síðastliðið ár. Elísabet er formaður Hugrúnar - geðfræðslufélags háskólanema, sem stofnað var árið 2016 af nemendum í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sálfræði við Háskóla Íslands og hefur gegnt hlutverki oddvita Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, samhliða því. Röskva vann meirihluta í kosningum til Stúdentaráðs í febrúar. Áður var Elísabet formaður sviðsráðs Heilbrigðisvísindasvið síðustu tvö starfsárin en hún lætur nú af störfum þar. Á skiptafundi voru þrír menn kjörnir fulltrúar á Réttindaskrifstofu SHÍ. Sonja Sigríður Jónsdóttir var kjörin varaformaður, Pétur Geir Steinsson hagsmunafulltrúi og Elísa Björg Grímsdóttir lánasjóðsfulltrúi. Hæ ég var rétt í þessu kjörin einróma formaður Stúdentaráðs takkkkkk pic.twitter.com/JtbUNhl4yv— Elísabet Brynjars (@betablokker_) March 19, 2018
Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira