Sýningin var upplifunargjörningar þar sem áhorfendum gafst kostur á að kynnast vörumerkjunum báðum í athöfn sem veitti allt í senn slökun og núvitund. Saman deila Swimslow og Angan Skincare sýn á að miðla arfleið baðmenningu Íslendinga en í gegnum aldirnar hafa Íslendingar baðað sig í jarðhitalaugun og hafið og náttúran ávallt spilað stóra þátt í menningu okkar. Íris Ósk Laxdal er stofnandi og hönnuður Angan Skincare og Erna Bergmann stofnandi og hönnuður Swimslow en bæði vörumerkin eiga það sameiginlegt að vera sjálfbær.
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir lék á gong, en förðun og hár var í höndunum á Reykjavík Make Up School með vörum frá MAC og Bryndísi Helgadóttur með vörum frá Davines.
Neðst í fréttinni má sjá albúm með myndum frá viðburðinum sem Berglaug ljósmyndari tók. Við látum líka fylgja myndir frá myndatöku með Írisi Dögg Einarsdóttur ljósmyndara sem teknar voru á Vestfjörðum með fyrirsætunni Matthildi Matthíasdóttur.




