Oddvitaáskorunin: Þurfti að skálda sig inn og út af sviði Samúel Karl Ólason skrifar 17. maí 2018 11:00 Frá fyrstu leiksýningu Jóns sem atvinnuleikari í búningsherbergi Leikfélags Akureyrar.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2018 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Jón Ingi Hákonarson leiðir list Viðreisnar í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Ég bjó í Norðurbænum til 10 ára aldurs og gekk í Engidalsskóla en þurfti að flytja til Reykjavíkur og gekk í Melaskóla og Hagaskóla. Ég á frábærar minningar frá Breiðvangnum og átti frábæra vini og í minningunni voru ævintýri við hvert fótmál í hrauninu sem umlykur hverfið. Ég flutti aftur í Hafnarfjörð 2005 með konu minni Laufeyju Brá Jónsdóttur, en hún er Hafnfirðingur í húð og hár enda fædd á Sólvangi. Ég vil hvergi annars staðar búa en hér, þetta er dásamlegt bæjarfélag, fólkið er frábært og svo er veðrið betra í Hafnarfirði. Ég er menntaður leikari frá London og hef leikið og leikstýrt og kennt leiklist lengur en elstu menn muna. Við Laufey höfum verið með leiklistarnámskeið í Hellisgerði á sumrin frá 2004 og það er fátt sem jafnast á við að vinna leiklist með börnum, ímyndunaraflið og gleðin er svo mikil. Ég hef einnig MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík ásamt meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskóla Íslands. Mér finnst voðalega gaman læra eitthvað nýtt. Ég stundaði fótbolta og handbolta í gamla daga og er mikill íþróttaáhugamaður og reyni að stunda golf með misjöfnum árangri og svo hleypur maður um bæinn og lyfti lóðum í Hress. Ég hef alltaf haft áhuga á samfélagsmálum og stjórnmálum. Ég er í eðli mínu Krati en fann ekki rétta vettvanginn fyrir mig, ekki fyrr en ég fór að fylgjast með Viðreisn. Í þeim flokk hef ég fundið skyldar sálir sem kunna að meta frjálslyndi, fagmennsku og lausnamiðaða hugsun. Það var ekki fyrr en ég upplifið þetta að ég taldi mér óhætt að gefa kost á mér til góðra verka á pólitíska sviðinu.Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Hellisgerði.Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag) Álftanesi því það er svo stutt til Hafnarfjarðar.Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Lambahryggur með öllu tilheyrandi.Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda? Grillmatur er mín deild. Get grillað allt.Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? Time með Pink Floyd.Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig, sem segja má frá? Kom inn á svið á kolröngum tíma í nemendasýningu í leiklistarskólanum í London og þurfti að skálda mig inn í senuna og út úr henni aftur.Draumaferðalagið? Mig hefur alltaf langað að fara í langt ferðalag um Suður Ameríku.Trúir þú á líf eftir dauðann? Ég trúi á tilveru eftir dauðan.Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í? Við æskuvinirnir Örlygur Smári vorum mjög duglegir að gera símaat þegar skífusímar voru á hverju heimili. Þóttist einu sinni vera Alfreð Gíslason handboltaþjálfari og laug því að vini okkar að hann ætti að koma til KA. Það munaði rosalega litlu að hann tæki flugvélina norður en við rétt náðum að stoppa hann.Hundar eða kettir? Ég er kattarmegin í tilverunni.Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd? Goodfellas klikkar aldrei.Er eitthvað smávægilegt sem farið hefur í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt laga? Ég læt ekki litlu málin fara í taugarnar á mér.Á að banna flugelda? Nei.Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju? Aron Einar Gunnarsson, vegna þess að við erum ófeimnir við að skarta skeggi og svo er ég ódrepandi baráttuhundur eins og okkar ástkæri fyrirliði.Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu býðst að taka þátt. Áhugasamir oddvitar geta verið í sambandi við samuel@stod2.is.
Kosningar 2018 Oddvitaáskorunin Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira