„Sniðgöngum Eurovision 2019“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. maí 2018 14:39 Páll Óskar er ekki til í Eurovision í Ísrael. Vísir/Eyþór
Páll Óskar Hjálmtýsson, Eurovision-fari og einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í keppninni, segir kjörið tækifæri felast í því að sniðganga Eurovision í Ísrael á næsta ári og mótmæla þannig „fjöldamorðum Ísraelshers á Palestínu og setja mörk á alþjóðavísu.“ Bætist Páll Óskar í hóp fjölmargra Íslendingar sem vilja að RÚV afþakki boðið á næsta ári. Rúmlega sjö þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til RÚV um að taka ekki þátt að ári. Undirskriftalistanum er beint að RÚV sem sér um þátttöku Íslands í Eurovision. Eins og staðan er núna mun Ísland taka þátt í Ísrael að ári en bæði Felix Bergsson, fararstjóri íslenkska hópsins, og Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, hafa báðir sagt í fjölmiðlum síðustu daga að ekki standi annað til af hálfu Íslands en að taka þátt.Barnamorð er ómennska „Kæra RÚV. Nýtið þetta tækifæri og mótmælið með fjarveru ykkar / okkar Íslendinga. Þessu afneitunar-gleðipartíi tökum við ekki þátt í. Skemmtiefni, dægurlög og glamúrgallar eru nefnilega víst bullandi pólitískt mál. Að reyna að aðskilja pólitík og skemmtiefni eða íþróttir er fyrirsláttur. Barnamorð er að mínu áliti komið út fyrir það að vera pólitík. Barnamorð er ómennska,“ segir Páll Óskar. „Sniðgöngum Eurovision 2019. RÚV gæti gert margt frábært við peningana: Meira tónlistarefni, jafnvel okkar eigin íslensku lagakeppni, leikið efni sem og barnaefni á RÚV. Að sleppa einni Eurokeppni er lítið mál samanborið við þjóðarmorð Ísreals á Palestínu. Hver hefur geð á því að troða upp í Jerúsalem með yfirstandandi blóðbað hinum megin við vegginn? Ekki ég.“Söngkonan Netta fór með sigur af hólmi í Eurovision á laugardaginn. Keppnin fer fram í heimalandi hennar, Ísrael, á næsta ári.vísir/apFacebook-færsla Páls Óskars á Facebook Eins og ég elska Eurovision mikið, þá finnst mér litið mál - réttara sagt - hið besta mál að sitja hjá og sniðganga keppnina hjá þjóðum sem hafa gerst brotlegar við alþjóðalög og stunda mannréttindabrot og blóðuga stríðsglæpi næstum dag hvern. Og hafa gert síðustu 70 árin. Upplýsingar um sögu Ísraels flæða núna á gerfihnattaöld til fólks sem hefur kannski hingað til verið glórulaust um hve alvarlegt ástandið er á Gaza svæðinu. Ég var einn af þeim glórulausu. Ég hafði ósköp litla hugmynd um hvað væri í gangi þarna síðast þegar Íslendingar kepptu í Jerúsalem árið 1999. Ímyndarherferð Ísraels er að koma í bakið á þeim. Við vitum betur. Eurovision bliknar og blánar í samanburði við yfirganginn, stjórnsemina og frekjuna sem sponsuð af Bandaríkjunum og nú á að fara í fegrunaraðgerð á ímynd Ísraels út á við með Eurovision. Svo ég vitni nú í Bjarna Karlsson: "Ég samhryggist gyðingum í Ísrael að hafa gengið gegnum árþúsunda höfnun og helför seinni heimstyrjaldar, án þess að öðlast þekkingu á friði en verða þess í stað nákvæm eftirlíking eigin óvina." Hér er kjörið tækifæri til að mótmæla fjöldamorðum Ísraelhers á Palestínu og setja Ísreal mörk á alþjóðavísu. Það var pínlegt að heyra þakkarræðu Nettu frá Ísrael fyrir lag sem var sprottið að hennar sögn úr #metoo byltingunni: "Thank you for choosing different, thank you for accepting differences between us, thank you for celebrating diversity,." Væri Netta kannski til í að gera það sama milli Ísrael og Palestínu, í stað þess að taka sjálfsmynd af sér klædda í einkennisbúning Ísraelshers? Hver veit hverju hún tók þátt í á meðan hún gengdi herskyldu? Kæra RÚV. Nýtið þetta tækifæri og mótmælið með fjarveru ykkar / okkar Íslendinga. Þessu afneitunar-gleðipartíi tökum við ekki þátt í. Skemmtiefni, dægurlög og glamúrgallar eru nefnilega víst bullandi pólitískt mál. Að reyna að aðskilja pólitík og skemmtiefni eða íþróttir er fyrirsláttur. Barnamorð er að mínu áliti komið út fyrir það að vera pólitík. Barnamorð er ómennska. Sniðgöngum Eurovision 2019. RÚV gæti gert margt frábært við peningana: Meira tónlistarefni, jafnvel okkar eigin íslensku lagakeppni, leikið efni sem og barnaefni á RÚV. Að sleppa einni Eurokeppni er lítið mál samanborið við þjóðarmorð Ísreals á Palestínu. Hver hefur geð á því að troða upp í Jerúsalem með yfirstandandi blóðbað hinum megin við vegginn? Ekki ég.
Eurovision Tengdar fréttir Daði hættur við Eurovision og hvetur RÚV til að sniðganga keppnina Nú hafa Daði Freyr og Gagnamagnið greint frá því að sveitin ætli sér ekki að taka þátt í Söngvakeppninni árið 2019, eins og fyrirhugað var. 15. maí 2018 13:30 90 milljóna króna Eurovision-ævintýri Íslands Evrópubúar kunnu fjórða árið í röð ekki að meta framlag okkar. 14. maí 2018 10:24 Leikstjóri íslenska Eurovision-atriðisins hefði ekki breytt neinu Arnór Pálmi Arnarson, leikstjóri íslenska atriðisins í Eurovision, segir að eftir á að hyggja hefði hann ekki breytt neinu hvað varðar sviðsetningu á atriðinu í keppninni, allt hafi farið eins og áætlað var og engu hafi þurft að sleppa. Hann segir íslenska hópinn jafnramt ekki hafa látið gagnrýnisraddir á sig fá eftir slæmt gengi á undankvöldi keppninnar síðastliðinn þriðjudag. 14. maí 2018 22:15 Mest lesið Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Innlent Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Innlent Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Innlent Rok og rigning sama hvert er litið Veður Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Erlent Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Innlent Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Innlent Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Innlent Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Innlent Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Innlent Fleiri fréttir Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Fulltrúar minnihlutans á einu um að tollarnir hafi ekki verið ræddir Gervigreind leggur Íslendingum orð í munn, bátabruni og veðrið um versló Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Segir áhyggjuefni að ESB hafi platað Íslendinga í tíu ár „Ökum slóðann” – Átaksverkefni gegn utanvegaakstri Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Bátar brenna í Bolungarvík Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna fara rangt með mál „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Sjá meira
Daði hættur við Eurovision og hvetur RÚV til að sniðganga keppnina Nú hafa Daði Freyr og Gagnamagnið greint frá því að sveitin ætli sér ekki að taka þátt í Söngvakeppninni árið 2019, eins og fyrirhugað var. 15. maí 2018 13:30
90 milljóna króna Eurovision-ævintýri Íslands Evrópubúar kunnu fjórða árið í röð ekki að meta framlag okkar. 14. maí 2018 10:24
Leikstjóri íslenska Eurovision-atriðisins hefði ekki breytt neinu Arnór Pálmi Arnarson, leikstjóri íslenska atriðisins í Eurovision, segir að eftir á að hyggja hefði hann ekki breytt neinu hvað varðar sviðsetningu á atriðinu í keppninni, allt hafi farið eins og áætlað var og engu hafi þurft að sleppa. Hann segir íslenska hópinn jafnramt ekki hafa látið gagnrýnisraddir á sig fá eftir slæmt gengi á undankvöldi keppninnar síðastliðinn þriðjudag. 14. maí 2018 22:15