Lögregla kölluð til vegna ölvaðs manns sem gekk berserksgang með tveggja tonna gröfu við heimili sitt Birgir Olgeirsson skrifar 13. maí 2018 20:57 Maðurinn lagði á flótta neyddist lögreglan til að stöðva för hans sem varð til þess að bíllinn hans valt. Vísir/Eyþór
Lögreglan á Suðurlandi var kölluð til í Biskupstungum vegna ölvaðs manns sem þar gekk berserksgang með tveggja tonna gröfu við heimili sitt á sjöunda tímanum í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að á leið sinni á vettvang mættu lögreglumenn manninum á bíl og voru honum gefin stöðvunarmerki en þeim sinnti hann ekki heldur ók á undan lögreglu áleiðis eftir Skálholtsvegi og upp í Þjórsárdal. Á Skálholtsvegi reyndu lögreglumenn að komast fram fyrir bifreið mannsins en hann þvingaði þá lögreglubifreiðina út fyrir veg. Í ljósi ástands mannsins, aksturslags og þeirrar almennu umferðar sem þarna á leið um ákváðu lögreglumennirnir að beita lögreglubifreið til að stöðva akstur mannsins. Það var gert á Þjórsárdalsvegi en við það valt bifreið hans. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslu á sjúkrahús í Reykjavík. Hann var með meðvitund en nánari upplýsingar um meiðsl hans liggja ekki fyrir. Þau eru þó ekki talin alvarleg. Lögreglumenn á vettvangi eru ómeiddir. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið fengin til að aðstoða við rannsókn vettvangs.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira