Ríflega tvöfalt fleiri mörk skoruð á gervigrasi í Pepsi-deildinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. maí 2018 15:30 Sex mörk voru skoruð í gervigrasleik Stjörnunnar og Víkings. vísir/daníel
Þeir sem vilja sjá markaleiki í Pepsi-deild karla í fótbolta ættu að elta uppi leiki sem fram fara á gervigrasi því þar eru skoruð ríflega tvöfalt fleiri mörk en á náttúrlegu grasi í byrjun móts. Fótboltamaðurinn Ingólfur Sigurðsson tók saman markaskorun á þessum tveimur tegundum valla í fyrstu 27 leikjum Pepsi-deildarinnar og er munurinn sláandi. Aðeins 1,8 mörk hefur skorað að meðaltali í 17 grasleikjum í byrjun deildarinnar eða 32 mörk í 17 leikjum. Í tíu leikjum á gervigrasi hafa verið skoruð 41 mark eða 4,1 mark að meðaltali í leik. Þrjú markalaus jafntefli hafa litið dagsins ljós í fyrstu 27 leikjum deildarinnar og voru það allt grasleikir. Vissulega er mikill munur á grasvöllunum en í Víkinni, sem kom ekki vel undan vetri, hafa verið skoruð tvö mörk í þremur leikjum og á enn verri velli KA-manna fyrir norðan hafa verið skoruð tvö mörk í tveimur leikjum. Á flottum velli FH-inga í Kaplakrika hafa aftur á móti verið skoruð átta mörk í tveimur leikjum eða fjögur mörk að meðaltali í leik. Í Kópavogi hafa svo verið skoruð sex mörk í tveimur leikjum Breiðabliks eða þrjú mörk að meðaltali í leik. Það verður fróðlegt að sjá hvernig markaskorun dreifist í kvöld þegar að þrír leikir fara fram; tveir á náttúrlegu grasi og einn á gervigrasi. Stjarnan tekur á móti Fylki í Garðabænum, Breiðablik fær Víking í heimsókn og Grindavík tekur á móti Val í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.17 grasleikir: 32 mörk10 gervigrasleikir: 41 mark1,8 mark í leik að meðaltali á grasi.4,1 mörk í leik að meðaltali á gervigrasi.Þrjú markalaus jafntefli. Allt grasleikir.— Ingólfur Sigurðsson (@ingolfursig) May 23, 2018
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira