Sigurbjörn tryggði Valsmönnum sigurinn í Grindavík | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. maí 2018 13:30
Grindavík og Valur mætast í kvöld í fimmtu umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta en leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD sem hefst klukkan 19.00. Grindjánar fara vel af stað í deildinni en þeir eru í þriðja sæti fyrir leiki kvöldsins með sjö stig og eru aðeins búnir að fá á sig tvö mörk í fyrstu fjórum leikjum mótsins. Valsmenn hafa aftur á móti ekki farið jafnvel af stað og búist var við en Íslandsmeistararnir eru aðeins búnir að vinna einn leik af fjórum. Þeir eru þó vissulega taplausir með sex stig í fimmta sæti. Til að hita upp fyrir leik kvöldsins má sjá hér að ofan allt það helsta úr fimmtán ára gömlum leik liðanna í fyrstu umferð Landsbankadeildar karla frá því 2003 en þá unnu nýliðar Vals góðan 2-1 sigur. Ólafur Örn Bjarnason kom Grindavík yfir með marki úr vítaspyrnu á elleftu mínútu sem ungur Ray Anthony Jónsson fiskaði á Ólaf Þór Gunnarsson í marki Vals. Alfreð Elías Jóhannsson, núverandi þjálfari kvennaliðs Selfoss, heimtaði rautt en Jóhannes Valgeirsson, dómari, lét gult spjald duga. Jóhann Hilmar Hreiðarsson jafnaði metin úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur en goðsögnin Sinisa Kekic braut á Jóhanni. Grindvíkingar mótmæltu mikið en allra manna rólegastur var Óli Stefán Flóventsson, núverandi þjálfari Grindjána. Jóhann kom svo aftur við sögu í sigurmarkinu en hann þrumaði þá boltanum í fyrirliðann Sigurbjörn Hreiðarsson og þaðan í netið en markið skráist á Sigurbjörn sem er aðstoðarþjálfari Vals í dag. Flottur sigur nýliðanna í fyrstu umferð. Valur féll samt sem áður úr deildinni í þriðja sinn á fimm árum í lok sumars 2003 en kom aftur upp fyrir tímabilið 2005 þar sem að það hafnaði í öðru sæti og varð bikarmeistari. Valsmenn urðu svo Íslandsmeistarar tveimur árum síðar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira